Einn af seðlabankastjórum hrunsins ráðinn án auglýsingar

„Ingimundur Friðriksson hefur hlaupið í skarðið varðandi verkefnin og rúmlega það,“ segir í svari Seðla­bankans við fyrir­spurn Stundarinnar.

Ósammála ályktunum rannsóknarnefndar
Ósammála álykt­unum rann­sókn­ar­nefndar Ingi­mundur Frið­riks­son hefur hafnað því alfarið að hafa gert mis­tök eða sýnt af sér van­rækslu í aðdrag­anda hruns­ins. Myndin var tekin þegar Ingi­mundur bar vitni í rétt­ar­höld­unum yfir Geir H. Haarde árið 2012. Mynd: Pressphotos.biz

Ingimundur Friðriksson, einn þriggja seðla­bankastjóra sem rann­sóknarnefnd Alþingis snupraði fyrir vanrækslu árið 2010, var ráðinn til starfa í Seðla­bankanum án auglýsingar í fyrra. Sinnir hann verkefnum aðstoðar­framkvæmda­stjóra alþjóða­sviðs og skrif­stofu banka­stjóra. „Sú staða hefur verið ófyllt síðan haustið 2016. Því til viðbótar er hann með gæða­eftirlit og yfir­lestur á ýmsum útgáfum bankans og öðrum textum sem bankinn sendir frá sér og sinnir fleiri verkefnum,“ segir í svari bankans við fyrir­spurn Stundarinnar, en um tíma­bundna ráðningu er að ræða.

Ingimundur Friðriksson lét af embætti seðla­bankastjóra í febrúar 2009 að beiðni þáverandi forsætis­ráðherra, Jóhönnu Sigurðar­dóttur. Rúmu ári síðar komst rann­sóknarnefnd Alþingis að þeirri niður­stöðu að banka­stjórn Seðla­bankans hefði gerst sek um vanrækslu í tveimur málum í aðdrag­anda hrunsins. Banka­stjórnin hefði ekki gert viðhlítandi ráðstafanir til að kanna raun­verulega stöðu Lands­bankans, með tilliti til áhrifa hennar á fjármála­stöðugleika á Íslandi, eftir að alvarlegar vísbendingar komu fram í ágúst 2008. Að því er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár