Miðlunartillaga samþykkt í ljósmæðradeilu

Tillaga rík­is­sátta­semj­ara var sam­þykkt með yfir­burðum. Nýr kjara­samn­ingur ljós­mæðra gildir til loka mars á næsta ári.

Miðlunartillaga samþykkt í ljósmæðradeilu
Ljós­mæður Deilu ljós­mæðra og rík­is­ins er nú lokið. Mynd: Shutterstock

Ljós­mæður sam­þykktu í atkvæða­greiðslu miðl­un­ar­til­lögu rík­is­sátta­semjar í kjara­deilu Ljós­mæðra­fé­lags Íslands og rík­is­ins. Tillagan var sam­þykkt með 95,1 pró­senti greiddra atkvæða. Á kjör­skrá voru 247 og 224 greiddu atkvæði, sem jafn­gildir 91 pró­sent þátt­töku.

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur þá einnig sam­þykkt miðl­un­ar­til­lög­una fyrir hönd rík­is­ins og er því nýr kjara­samn­ingur kom­inn á en hann gildir til 31. mars á næsta ári.

Rík­is­sátta­semj­ari lagði fram miðl­un­ar­til­lögu í deil­unni 21. júlí síð­ast­lið­inn en í henni fólust í meg­in­at­riðum sam­bæri­legar hækk­anir og voru í samn­ingi sem gerður var milli samn­inga­nefndar ljós­mæðra og rík­is­ins 29. maí síð­ast­lið­inn. Sá samn­ingur var hins vegar gjör­felldur í almennri atkvæða­greiðslu meðal ljós­mæðra. Tillagan nú gerir ráð fyrir að skip­aður verði þriggja manna gerð­ar­dómur sem kveða skuli upp úr um með hvaða hætti álag, menntun og inn­tak starfs ljós­mæðra skuli hafa áhrif á launa­setn­ingu innan stétt­ar­innar. Gerð­ar­dómnum er ætlað að ljúka störfum eigi síðar en 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Kjara­deila ljós­mæðra við ríkið er orðin löng og ströng en kjara­samn­ingar ljós­mæðra hafa verið lausir frá því í sept­em­ber á síð­asta ári. Kjara­deil­unni var vísað til rík­is­sátta­semjar 5. febr­úar síð­ast­lið­inn. Yfir­vinnu­bann sem ljós­mæður sam­þykktu tók gildi 18. júlí síð­ast­lið­inn á Land­spít­ala og skap­aði veru­lega erf­ið­leika á spít­al­anum. Meðal ann­ars sagði Páll Matth­ía­son, for­stjóri Land­spít­ala, að hættu­á­stand hefði skap­ast á spít­al­anum og var þrauta­ráðið að loka með­göngu- og sæng­ur­kvenna­deild og sam­eina þjón­ustu á kven­lækn­inga­deild. Þá var 12 vikna ómskoð­unum aflýst og nokkur fjöldi barns­haf­andi kvenna var sendur á önnur sjúkra­hús, meðal ann­ars norður á Akureyri.

Fjöldi ljós­mæðra um land allt hefur sagt upp störfum, flestar á Land­spít­ala eða 30 tals­ins. 10 upp­sagnir hafa þegar tekið gildi þar og fleiri bæt­ast við um kom­andi mán­að­ar­mót, að óbreyttu. Páll Matth­í­as­son hefur lýst því að fæð­ing­ar­þjón­usta Land­spít­ala muni ekki kom­ast í eðli­legt horf fyrr en þær ljós­mæður sem sagt hafa upp störfum ráði sig til vinnu að nýju.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár