Bjarni um ákvörðun Pírata: Yfirlæti og dónaskapur gagnvart dönsku þjóðinni

„Þegar Alþingi Íslend­inga býður for­seta danska þjóð­þings­ins til að vera við­staddur hátíð­ar­höld vegna sögu­legra tíma­móta finnst þessu fólki þannig við hæfi að úti­loka við­kom­andi ein­stak­ling, kos­inn í frjálsum almennum kosn­ingum.“

Bjarni um ákvörðun Pírata: Yfirlæti og dónaskapur gagnvart dönsku þjóðinni

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir Pírata harð­lega fyrir að hafa ákveðið að snið­ganga hátíð­ar­fund­inn á þing­völlum í dag vegna ræðu­halda Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana sem er þekkt fyrir útlend­inga­andúð og boðun harðrar inn­flytj­enda­stefnu.

„Það er til fólk sem slær reglu­lega um sig með því að leggja áherslu á lýð­ræðið. Vilja fólks­ins. Frelsi hins almenna kjós­anda til að koma skoð­unum sínum að. Í því sam­hengi er reglu­lega rætt um rétt minni­hlut­ans til að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi og hafa áhrif. Í flestum ríkjum er þetta tryggt með almennum, frjálsum kosn­ingum og byggt á full­trúa­lýð­ræði,“ skrifar Bjarni á Facebook.

„Það er hins vegar svo að þegar á reynir er eins og þetta sama fólk eigi erf­ið­ast með að virða nið­ur­stöðu þeirra leik­reglna sem best tryggja lýð­ræð­is­lega nið­ur­stöðu. Það hikar ekki við að segja til­tekna rétt kjörna ein­stak­linga óalandi og óferj­andi, jafn­vel með öllu óvel­komna og óhæfa til sam­skipta. Þegar Alþingi Íslend­inga býður for­seta danska þjóð­þings­ins til að vera við­staddur hátíð­ar­höld vegna sögu­legra tíma­móta finnst þessu fólki þannig við hæfi að úti­loka við­kom­andi ein­stak­ling, kos­inn í frjálsum almennum kosn­ingum. Ég deili ekki skoð­unum við­kom­andi stjórn­mála­manns á ýmsum hlutum og hef skiln­ing á því að fólk hafi skoðun á og sé ósam­mála áherslum hans. En það er óskylt lýð­ræð­inu að virða ekki emb­ætti danska þings­ins. Það er yfir­læti og bein­línis dóna­skapur gagn­vart danska þjóð­þing­inu og dönsku þjóð­inni. Það er mitt við­horf.“

Ásmundur Frið­riks­son, sam­flokks­maður Bjarna, tjáði sig einnig um ákvörðun Pírata í dag. „Pírata sýna lít­ils­virð­ingu sína á lýð­ræð­inu og skoð­unum fólks en mest er skömm þeirra við þjóð­ina að mæta ekki á þing­fund á Þing­völlum á merkum tíma­mótum í sögu sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslend­inga,“ skrifar Ásmundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár