Lögreglumaðurinn sem þrjár stúlkur kærðu fyrir kynferðisbrot vill 1,5 milljónir frá blaðakonu Stundarinnar

Þrjár barn­ungar stúlkur kærðu Aðalberg Sveins­son lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot. Lög­reglan ákvað að hann yrði ekki færður til í starfi. Málin voru öll felld niður. Nú hótar hann að fara með blaða­konu Stund­ar­innar fyrir dóm vegna orða­lags í frétt um málið, fái hann ekki afsök­un­ar­beiðni og 1,5 millj­ónir króna í bætur.

Lögreglumaðurinn sem þrjár stúlkur kærðu fyrir kynferðisbrot vill 1,5 milljónir frá blaðakonu Stundarinnar
Lög­reglu­mað­ur­inn Aðal­bergur Sveins­son var kjör­inn for­maður Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur eftir að hann var kærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni. Málið, og tvö önnur gegn honum fyrir sömu brot, voru felld niður. Mynd: Pressphotos

Aðal­bergur Sveins­son, lög­reglu­maður sem ekki var leystur frá störfum þrátt fyrir að þrjár barn­ungar stúlkur kærðu hann fyrir kyn­ferð­is­brot, krefst þess að fá greiddar 1,5 millj­ónir króna í miska­bætur frá blaða­konu Stund­ar­innar vegna orða­lags í frétt um stöðu hans innan lög­regl­unnar. Aðal­bergur hefur sent aðvörun um máls­höfðun vegna máls­ins og því gæti svo farið að málið fari loks­ins fyrir dóm, en með hann sem stefn­anda frekar en sak­born­ing.

Þrjár ungar konur hafa und­an­farið stigið fram og greint frá því að þær hefðu kært Aðalberg fyrir kyn­ferð­is­brot, sem þær segja hann hafa framið þegar þær voru á barns­aldri, án þess að það hefði haft áhrif á störf hans hjá lög­regl­unni. Ein konan, Helga Elín Her­leifs­dóttir, sagði frá reynslu sinni ásamt móður sinni í við­tali hjá tíma­rit­inu Mannlífi og greindi frá því að Aðal­bergur hefði verið sendur í útkall að heim­ili þeirra fyrr á þessu ári, þrátt fyrir að hún hefði kært hann fyrir að brjóta gegn sér sem barni. Honum var því hvorki vikið frá störfum né var aðkoma hans að meintum þolendum hans tak­mörkuð í starfi hans sem lög­reglu­þjónn, og var afleið­ingin meðal ann­ars að meintur þol­andi í mál­inu treysti ekki lög­gæsl­unni.

Naut trausts hjá lögreglunni

Í frétt Stund­ar­innar þann 22. júní 2018, sem máls­höfð­un­ar­hót­unin snýr að, var greint frá því að Aðal­bergur hefði notið trausts hjá lög­regl­unni, þrátt fyrir kær­urnar, og að hann hefði meðal ann­ars verið kjör­inn for­maður Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur eftir að hann var kærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni.

Tekið skal fram að öll þrjú kæru­málin gegn honum voru felld niður og ekki ákært í þeim, meðal ann­ars vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum. Í slíkum málum er ekki sér­stak­lega horft til þess að fleiri en einn aðili kæri fyrir sam­svar­andi hegðun.

Stúlkurnar voru skólasystur

Allar stúlk­urnar þrjár greindu frá því að Aðal­bergur hefði þuklað á kyn­færum þeirra og sagði ein þeirra, fyrr­ver­andi stjúp­dóttir hans, að hann hefði meðal ann­ars stungið fingri inn í leggöng hennar. Stúlk­urnar þrjár voru allar í sama grunn­skól­anum og í sama árgangi. 

Kiana Sif LimehouseStjúp­dóttir lög­reglu­manns­ins kærði hann fyrir kyn­ferð­is­brot.

Aðal­bergur var stjúp­faðir Kiönu Sifjar Limehouse, en önnur stúlkn­anna kærði kyn­ferð­is­brot í sum­ar­bú­stað­ar­ferð þegar hún var tíu ára gömul og sú þriðja, Lovísa Sól Sveins­dóttir, var besta vin­kona Kiönu og oft gest­kom­andi heima hjá henni, og þar með Aðal­bergi. Hún brotn­aði niður árið 2013 og greindi föður sínum frá því að stjúp­faðir Kiönu hefði þuklað á henni ítrekað árin 2010 til 2011 og beint til hennar að segja ekki frá. „Ég hef einu sinni séð hann frá því að ég kærði hann, það var í Kringl­unni. Ég bara fraus og gat ekki hreyft mig. Loks byrj­aði ég bara að gráta og end­aði á því að hlaupa út,“ sagði hún í sam­tali við DV á dög­unum, þar sem þær stigu fram í sam­ein­ingu og sögðu sögu sína.

Diljá Sig­urð­ar­dóttirBlaða­maður Stund­ar­innar fékk sent kröfu­bréf frá lög­reglu­manni sem krefur hana um 1,5 millj­ónir króna í bætur vegna orða­lags í frétt um þrjár kærur á hendur honum vegna ásk­ana um að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn börnum.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður sendi Diljá Sig­urð­ar­dóttur, blaða­konu Stund­ar­innar, og rit­stjórum Stund­ar­innar, kröfu­bréf í kjöl­far birt­ingar frétt­ar­innar um að Aðal­bergur hefði notið trausts lög­regl­unnar þrátt fyrir kær­urnar, þar sem gef­inn var sól­ar­hrings­frestur til að verða við kröfum um að greiða Aðal­bergi 1,5 millj­ónir króna og birta opin­ber­lega afsök­un­ar­beiðni. „Að þeim tíma liðnum er áskil­inn réttur til þess að höfða dóms­mál á hendur þér án frek­ari við­vör­unar,“ sagði í bréf­inu. Ekki var orðið við kröf­unum, en orða­lagi í frétt Stund­ar­innar var breytt úr „nauðg­un­ar­kærum“ í „kyn­ferð­is­brota­kærur“ til að koma til móts við athuga­semdir Aðal­bergs á meðan málið væri skoðað lög­fræði­lega.

Málshöfðunarhótunin snýr að skilgreiningu orðsins „nauðgun“

Krafa Vil­hjálms fyrir hönd Aðal­bergs snýr að því orða­lagi fréttar Stund­ar­innar að vísa til „nauðg­un­ar­kæra“. 

Orðið „nauðgun“ er skil­greint í almennum hegn­ing­ar­lögum sem svo að það feli í sér „sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök“. Skil­grein­ingin á því hvað „önnur kyn­ferð­is­mök“ vísar til hefur verið við­fangs­efni fræði­manna á sviði lög­fræði.

Flokkist athæfið að þukla á kyn­færum barna ekki undir „önnur kyn­ferð­is­mök“ er um „kyn­ferð­is­lega áreitni“ að ræða, sem á við um aðra laga­grein og annan refsiramma en nauðgun. Í lögum er greint frá því að kyn­ferð­is­leg áreitni „felst m.a. í því að strjúka, þukla eða káfa á kyn­færum eða brjóstum ann­ars manns innan klæða sem utan.“ En það getur einnig flokk­ast undir „önnur kyn­ferð­is­mök“ að káfa á kyn­færum. Í grein­ar­gerð með frum­varpi á Alþingi um breyt­ingu á kyn­ferð­is­brota­köflum almennra hegn­ing­ar­laga árið 2007 er mun­ur­inn á kyn­ferð­is­legri áreitni og öðrum kyn­ferð­is­mökum aðgreindur með því hversu lengi þuklið varir og hver til­gangur þess er.

„Undir aðra kyn­ferð­is­lega áreitni mundi falla káf á kyn­færum og brjóstum, sem varir stutta stund. Almennt er við það miðað að snert­ing sem fellur undir kyn­ferð­is­lega áreitni veiti ger­anda ekki kyn­ferð­is­lega full­næg­ingu. Sé hátt­semin komin á það stig, t.d. áður­nefnt káf, fellur hún undir önnur kyn­ferð­is­mök.“

Í meist­ara­rit­gerð í lög­fræði frá árinu 2013 er fjallað um kyn­ferð­is­lega áreitni og mörk þess. „Mestar líkur verður að telja á því að skilin milli kyn­ferð­is­legrar áreitni og ann­arra kyn­ferð­is­maka verði óljós þegar hátt­semi felst í snert­ingu kyn­færa,“ segir þar. Snerting á kyn­færum væri „önnur kyn­ferð­is­mök“, þegar „átt væri við kyn­ferð­is­lega mis­notkun á lík­ama ann­arrar mann­eskju, er kæmi í stað hefð­bund­ins sam­ræðis eða hefði gildi sem slíkt (sur­ro­gat). Væru þetta athafnir sem veittu eða væru almennt til þess fallnar að veita hinum brot­lega kyn­ferð­is­lega full­nægju.“

„Ég set þetta í flokk með barnaníði“

Aðal­bergur hefur ekki viljað ræða málið við Stundina. 

Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir Helgu Elínar, hefur unnið að því að fá úrskurðað um ábyrgð og rétt­mæti vinnu­bragða lög­regl­unnar í mál­inu, bæði Rík­is­lög­reglu­stjóra og Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hún telur að notk­unin á orð­inu „nauðgun“ falli að upp­lifun þolenda í mál­unum.

„Maðurinn hefur verið kærður í þrí­gang fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn börnum“

„Maðurinn hefur verið kærður í þrí­gang fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn börnum og að fara að hengja sig í ein­hvern svona orð­heng­ils­hátt... Nauðgun er nátt­úr­lega bara lík­ams­árás þar sem fórn­ar­lambið er neytt til ein­hverra athafna. Það er mín skil­grein­ing á orð­inu. Ég set þetta í flokk með barn­a­níði.“

Stund­inni hefur ekki borist form­leg stefna, en skil­yrði hennar hafa nú verið upp­fyllt með send­ingu form­legrar aðvör­unar um máls­höfðun.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Stundin er aðili að mál­inu sem fjallað er um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár