Sóttvarnalæknir varar við lekandafaraldri

55 greindust með lek­anda á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins, fleiri en allt árið 2015. Sótt­varna­læknir varar við far­aldri, en erlendis hefur borið á ónæmi gagn­vart helsta sýkla­lyf­inu.

Sóttvarnalæknir varar við lekandafaraldri
Karlmenn í yfir­gnæf­andi meiri­hluta Af þeim 55 sem greindust með lek­anda hér á landi fyrstu fimm mán­uði árs­ins voru 51 karl­menn. Mynd: Shutterstock

Fyrstu fimm mán­uði árs­ins greindust 55 manns á Íslandi með lek­anda. Í frétta­bréfi sótt­varn­ar­læknis er varað við lek­anda­far­aldri, en á tíma­bil­inu hafa þegar greinst fleiri en allt árið 2015.

Af þeim 55 sem greindust voru 51 karl­maður og bendir sótt­varna­læknir á að far­ald­ur­inn sé ein­kenn­andi fyrir karl­menn sem hafa mök við aðra karl­menn, en til­fellum meðal kvenna fer einnig fjölg­andi. Meiri­hluti þeirra sem greindust eru íslenskir rík­is­borg­arar.

Lek­anda­far­aldurSmokk­ur­inn er eina vörnin gegn smiti.

Starfs­hópur vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vakti nýlega athygli á auk­inni tíðni lek­anda­smita á Íslandi, sem og erlendis, sem mögu­lega orsakast af auknum straumi ferða­manna til Íslands og vax­andi ferða­laga Íslend­inga erlendis. „Við síð­ustu alda­mót voru skráð innan við 10 til­felli á hverja 100 þús­und íbúa á ári en árið 2016 var fjöld­inn kom­inn í 27 til­felli á hverja 100 þús­und íbúa eða sam­tals 89 ein­stak­lingar,“ segir í skýrslu hóps­ins frá jan­úar. „Var það nán­ast tvö­földun miðað við 2015.“

Lekandi orsakast af bakt­er­í­unni Neiss­eria gonorr­hoea sem berst á milli fólks við kyn­mök. Sýkingin er þekktur orsaka­valdur ófrjó­semi meðal kvenna og karla. Erlendis hefur borið á ónæmi gegn helsta sýkla­lyf­inu ceftríaxone sem notað er gegn lek­anda, en í skýrslu starfs­hóps­ins er tekið fram að slíkt ónæmi hafi ekki greinst á Íslandi enn sem komið er. Koma má í veg fyrir lek­anda­smit við kyn­líf með notkun smokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Smitsjúkdómar

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár