Mynd: Heiða Helgadóttir

Berst fyrir viðurkenningu á ranglætinu sem fólst í því að vista hann í fangelsi

Ólafur Hafsteinn Einarsson, fatlaður maður sem var vistaður án dóms í kvenna­fangelsi, átti fund með dómsmála­ráðherra í mars en hefur ekki enn fengið afgreiðslu á máli sínu. Ólafur krefst þess að rannsókn fari fram á máli hans og annarra sem voru vistaðir með honum.

Vonaðist eftir við­ur­kenn­inguÞegar Ólafur fór á fund ráð­herra von­að­ist hann til þess að brugð­ist yrði við frá­sögn hans og rang­lætið sem hann upp­lifði yrði við­ur­kennt, í það minnsta rann­sakað.

Ólafur Hafsteinn Einarsson sendi harðort bréf til dómsmála­ráðherra þar sem hann kallaði eftir formlegu svari ráðherra varðandi beiðni hans um opinbera rannsókn á starfsemi kvenna­fangelsisins Bitru á Suður­landi, þar sem Ólafur og aðrir fatlaðir einstaklingar voru vistaðir án dóms­úrskurðar. Bréfið var sent ráðherra þann 12. mars og óskað eftir svari fyrir 1. júlí. Þann 3. júlí barst bréf frá dómsmála­ráðuneytinu þess efnis að vegna sumarfría væri ekki unnt að svara bréfinu strax, en verið væri að vinna að svari. Tæpum tveimur mánuðum síðar hefur enn ekkert svar borist. Almennt er miðað við að svar við fyrir­spurnum berist innan tveggja vikna.

Fatlaðir vistmenn bjuggu í opna fangelsinu Bitru, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár