Búið að borga upp þriðja hvert leiguíbúðalán Íbúðalánasjóðs

Fjár­festar og lán­tak­endur leigu­í­búða­lána Íbúða­lána­sjóðs hafa gert upp 256 lán vegna fast­eigna­við­skipta á Reykja­nesi. Íbúða­lána­sjóður neitar að gefa upp hvaða 20 lán­tak­endur hafa fengið leigu­í­búða­lán hjá rík­is­stofn­un­inni. Þótt ekki megi greiða arð af félagi sem fær leigu­lán er auð­velt að skapa hagnað með því að selja fast­eign­ina og greiða upp lánið.

Langmest á Reykjanesi
Langmest á Reykja­nesi Mest af lán­unum sem greidd hafa verið upp hjá Íbúða­lána­sjóði voru veitt til að fjár­festa í hús­næði á Reykja­nesi. Hermann Jónasson er for­stjóri Íbúða­lána­sjóðs. Mynd: Haraldur Gudjonsson/hag

Lán­tak­endur sér­stakra leigu­í­búða­lána Íbúða­lána­sjóðs hafa greitt til baka rúm­lega þriðj­ung af þeim 932 hag­stæðu leigu­lánum sem rík­is­stofn­unin hefur veitt til sam­tals 20 lög­að­ila til að festa kaup á íbúðum á Íslandi. Samtals hafa 322 lán verið greidd upp fyrir sam­tals rúm­lega 3,3 millj­arða króna. Þetta kemur fram í svörum frá Íbúða­lána­sjóði. Lánin eru veitt til 50 ára og eru alltaf á 1. veð­rétti í umræddum fast­eignum. 

Rík­is­stofn­unin neitar að veita upp­lýs­ingar um hvaða lög­að­ilar það eru sem hafa fengið þessi lán og rök­styður það með því að um sé að ræða við­skipta­mál­efni umræddra aðila: „Ljóst er að hér umræddar upp­lýs­ingar eru við­skipta­mál­efni við­kom­andi félaga og félaga­sam­taka og er óheim­ilt að miðla slíkum upp­lýs­ingum, sbr. ofan­greint, nema skylt sé að veita skv. Lögum […] Verður hér í þessum efnum einnig að hafa í huga 9. gr. upp­lýs­inga­laga, er tak­markar almennt upp­lýs­inga­rétt almenn­ings þegar um er að ræða mik­il­væga fjár­hags- eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár