Kvartar yfir að „þurfa að sitja alltaf undir því að Sjálfstæðisflokkurinn sé einhver spillingarflokkur“

Hildur Björns­dóttir, fram­bjóðandi Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík, er óánægð með ásakanir um að Sjálfstæðis­flokkurinn hafi gerst sekur um spillingu.

Dóra Björt Guðjóns­dóttir, oddviti Pírata og Hildur Björns­dóttir, sem skipar annað sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík, tókust hart á um borgar­stjórnar­málin í viðtali í þættinum Harmageddon á útvarps­stöðinni X-inu í gær. 

Hildur gagnrýndi rekstur borgarinnar, en Dóra Björt svaraði á þá leið að skuldir sveitar­félaga undir stjórn Sjálfstæðis­flokksins væru hlutfalls­lega meiri heldur en skuldir Reykja­víkurborgar þótt borgin stæði betur að vígi í velferðar­málum.

Hildur sagðist ekki getað tekið undir þetta og vildi einnig fá að vita hvað Dóra Björt ætti við þegar hún segði að það væri ekki hægt að vinna með Sjálfstæðis­flokknum fyrr en hann tæki til hjá sér.

Hún fékk þau svör að það þyrfti ekki að fara langt aftur í tímann til að sjá hvaða „rugl hafi verið í gangi“ þegar Sjálfstæðis­flokkurinn hefði stjórnað borginni.

„Það er algjör­lega rangt að halda því fram og þurfa að sitja alltaf undir því að Sjálfstæðis­flokkurinn sé einhver spillingar­flokkur,“ svaraði Hildur að bragði.

Þess má geta að Sjálfstæðis­flokkurinn sat síðast í borgar­stjórnar­meirihluta meirihluta á kjör­tímabilinu 2006 til 2010, en tíð stjórnar­slit einkenndu þann tíma.  

Aðspurð hvers konar tiltekt Píratar kölluðu eftir nefndi Dóra Björt aksturs­greiðslumál þingmanna, „Braga­málið“ og Panama­skjölin sem dæmi um spillingarmál Sjálfstæðis­flokksins, auk ótrú­verðugs málflutnings þar sem flokkurinn hefði  leyft sér að fara frjáls­lega með stað­reyndir, til dæmis varðandi rekstur borgarinnar.

Hún sagði traust nauðsynlegt í meirihluta­samstarfi og þeir sem segðu ekki satt í kosninga­baráttu væru ótrú­verðugir. Þar nefndi hún ólögleg kosninga­loforð Eyþórs Arnalds sem dæmi. Hildur sagðist ekki sjá betur en hún væri sjálf að segja ósatt og að fram­setningin væri óheiðarleg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár