Nýr stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs á leigufélag sem er virkt á húsnæðismarkaði

Haukur Ingi­bergs­son segir að hann telji sig ekki vera van­hæfan til að sitja í stjórn Íbúða­lána­sjóðs þótt hann reki leigu­fé­lag. Haukur á meðal ann­ars fjórar íbúðir á Akureyri en Íbúða­lána­sjóður hefur það á stefnu­skrá sinni að stuðla að fast­eigna­upp­bygg­ingu á lands­byggð­inni.

Nýr stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs á leigufélag sem er virkt á húsnæðismarkaði
Á leigu­fé­lag og stýir rík­is­stofnun Stjórn­ar­for­maður Íbúða­lána­sjóðs, Haukur Ingi­bergs­son, á leigu­fé­lag sem er virkt á mark­aðnum á Íslandi. Félagið hefur keypt fjórar íbúðir á síð­ustu tveimur árum. Mynd: Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Haukur Ingi­bergs­son, stjórn­ar­for­maður rík­is­stofn­un­ar­innar Íbúða­lána­sjóðs, á leigu­fé­lag sem á og rekur sjö íbúðir í Kópavogi og á Akureyri. Fjórar íbúðir eru á Akureyri og þrjár í Kópavogi. Félagið, Ráð­gjafa­þjón­ustan ehf., var stofnað árið 1988 og er virkt á hús­næð­is­mark­aði í upp­kaupum á íbúðum.

Tvær af íbúð­unum sjö sem félagið á voru keyptar árið 2016 og tvær voru keyptar í fyrra, 2017. Auk þess var ein af íbúð­unum keypt 2014. Allar þessar íbúðir voru því keyptar eftir að Haukur sett­ist í stjórn Íbúða­lána­sjóðs eftir stjórn­ar­skiptin 2013 og voru ein­ungis tvær af íbúðum félags­ins keyptar fyrir þetta – önnur 1998 en hin 2009.

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra skip­aði Hauk sem stjórn­ar­for­mann Íbúða­lána­sjóðs í byrjun jan­úar síð­ast­lið­inn en Eygló Harð­ar­dóttir skip­aði hann í stjórn­ina 2013.

„Ég tel ekki að þetta komi í veg fyrir hæfi mitt til að sitja í stjórn­inni.“

 

Skipaði HaukÁsmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra skip­aði Hauk sem stjórn­ar­for­mann Íbúða­lána­sjóðs í …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár