Leynd yfir rannsóknarniðurstöðum og óskað eftir fleiri rannsóknum

Fram­boðs­frestur til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna rennur út á morgun en Bragi Guð­brands­son vill frum­kvæð­is­at­hugun og flýti­með­ferð hjá umboðs­manni Alþingis.

Leynd yfir rannsóknarniðurstöðum og óskað eftir fleiri rannsóknum

Bragi Guð­brands­son hjá Barna­vernd­ar­stofu ætlar að fara þess á leit við umboðs­mann Alþingis að hann hefji frum­kvæð­is­at­hugun á þeim emb­ætt­is­færslum sínum sem barna­vernd­ar­nefndir kvört­uðu undan í fyrra. Vonast hann eftir því að málið fái flýti­með­ferð í ljósi fram­boðs síns til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, en fram­boðs­frest­ur­inn rennur út á morgun. Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, hefur einnig kallað eftir því að óháðir aðilar taki kvart­anir barna­vernd­ar­nefnd­anna til skoð­unar. 

Hug­myndir um að umboðs­maður eða aðrir óháðir aðilar rann­saki málið eru athygl­is­verðar í ljósi þess að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hefur full­yrt að ráðu­neyti hans hafi þegar farið ítar­lega yfir kvört­un­ar­efni barna­vernd­ar­nefnd­anna og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Bragi og Barna­vernd­ar­stofa hafi ekki brotið lög.

Algjör leynd hvílir þó yfir rann­sókn­ar­nið­ur­stöðum ráðu­neyt­is­ins og mega þing­menn aðeins fá að sjá þær í „leyni­her­bergi“ Alþingis og ekki gera grein fyrir þeim opin­ber­lega. 

Fram kemur í yfir­lýs­ingu sem Bragi Guð­brands­son sendi frá sér undir kvöld að „fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn“ hafi borið „rang­færslur og ósann­indi“ á borð fyrir þjóð­ina og að í ljósi trún­að­ar­skyldna sinna sem emb­ætt­is­maður hafi hann ekki getað tjáð sig um slíkar „æru­meið­andi ávirð­ingar á opin­berum vett­vangi“.

Þar vísar hann vænt­an­lega til umfjöll­unar Stund­ar­innar sem birt­ist á föstu­dag og harðra við­bragða Pírata og þing­manna úr fleiri flokkum sem hafa gagn­rýnt Ásmund Einar Daðason félags­mála­ráð­herra fyrir upp­lýs­inga­leynd og óljós svör um rann­sókn vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda. 

„Í ljósi ofan­greinds hef ég tekið þá ákvörðun að leita eftir fundi með umboðs­manni Alþingis á morgun og bera fram þá ósk að hann taki til með­ferðar alla emb­ætt­is­færslu mína á Barna­vernd­ar­stofu er varðar þau mál sem vikið er að í kvört­unum þeirra tveggja barna­vernd­ar­nefnda sem vísað hefur verið til í opin­berri umræðu,“ skrifar Bragi. 

Samkvæmt lögum um umboðs­mann Alþingis getur emb­ættið tekið mál til með­ferðar á tvenns konar grund­velli; ann­að­hvort vegna kvört­unar frá aðila sem leitar sjálfur til umboðs­manns vegna þess að hann telur sig beittan rangs­leitni af hálfu stjórn­valds, eða þegar umboðs­maður telur til­efni til að hefja rann­sókn „að eigin frum­kvæði“. Í ljósi þess að Bragi vill að umboðs­maður taki kvart­anir barna­vernd­ar­nefnda undan sínum eigin emb­ætt­is­færslum til skoð­unar verður að ætla að hann hygg­ist hvetja umboðs­mann til að hefja frum­kvæð­is­at­hugun. Þá fer Bragi einnig fram á flýti­með­ferð en eng­inn lög­form­legur far­vegur er fyrir slíkt í lögum um umboðs­mann. Þá eru frum­kvæð­is­at­hug­anir alfarið á for­ræði umboðs­manns sjálfs. 

Bragi er ekki sá eini sem vill að fleiri aðilar en vel­ferð­ar­ráðu­neytið legg­ist yfir emb­ætt­is­færsl­urnar sem kvartað var yfir. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali við Stundina á föstu­dag að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra ætl­aði að fara aftur yfir málin með Braga Guð­brands­syni. Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna og full­trúi flokks­ins í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, kall­aði svo eftir því í Silfrinu í dag að óháðum aðilum yrði falið að rann­saka umkvört­un­ar­efni barna­vernd­ar­nefnd­anna. 

Stundin sló á þráð­inn til Kolbeins eftir þátt­inn og spurði hvort hann teldi eitt­hvað hafa komið fram sem benti til þess að rann­sókn vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins og máls­með­ferðin þar hefði verið ófull­nægj­andi eða ekki dugað til að varpa ljósi á vinnu­brögð for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. „Ég hrein­lega veit það ekki. Ég hef ekki séð rann­sókn ráðu­neyt­is­ins og þau gögn sem sumir þing­menn hafa séð. Ég er ekki í vel­ferð­ar­nefnd og horfi á þetta mál utan frá, en ég heyri að það ríkir ekki sátt um nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins og sett er spurn­inga­merki við hana,“ sagði Kolbeinn. „Það er mjög mik­il­vægt að svona mál séu hafin yfir allan vafa og þess vegna velti ég þessu upp, hvort það mætti ef til vill fá utan­að­kom­andi óháða aðila til að gera úttekt á þessu.“

Hér má sjá yfir­lýs­ingu Braga Guð­brands­sonar í heild:

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár