Lindarhvoll braut lög þegar upplýsingum um sölu ríkiseignar var leynt

Einka­hluta­fé­lagið sem ann­að­ist sölu stöð­ug­leika­eigna rík­is­ins lýtur ekki stjórn­sýslu­lögum og láð­ist að fylgja upp­lýs­inga­lögum þegar á reyndi.

Lindarhvoll braut lög þegar upplýsingum um sölu ríkiseignar var leynt
Steinar Þór Guð­geirs­son lög­maður hefur borið hit­ann og þung­ann af starf­semi Lind­ar­hvols. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra átti frum­kvæði að stofnun félags­ins og Þór­hallur Arason er stjórn­ar­for­maður þess. Mynd: Mynd af Steinari er kynningarmynd af vef Íslaga ehf

Lind­ar­hvoll, einka­hluta­fé­lagið sem var sett á lagg­irnar til að halda utan um sölu svo­kall­aðra stöð­ug­leika­eigna rík­is­ins, braut upp­lýs­inga­lög þegar fyr­ir­tæk­inu Frigus II ehf. var synjað um aðgang að upp­lýs­ingum um sölu á eign­ar­hluta og tengdum kröfum í Klakka ehf. sem áður hét Exista. Þá var Lind­ar­hvoli ekki stætt á því að heita þátt­tak­endum í opin­beru sölu­ferli trún­aði um þátt­töku þeirra, enda er Lind­ar­hvoll ehf. bundið af upp­lýs­inga­lögum. Þetta kemur fram í úrskurði sem úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál kvað upp fyrr í þessum mán­uði, en nið­ur­staða nefnd­ar­innar er sú að Lind­ar­hvoli ehf. beri að veita Frigusi umbeðin gögn. 

Málið varð­aði tæp­lega 18 pró­senta hlut rík­is­ins í Klakka sem boð­inn var til sölu haustið 2016, en tvö af þremur félögum sem buðu í hlut­inn tengd­ust stjórn­endum Klakka. BLM fjár­fest­ingar ehf. buðu best, en félagið er í eigu vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement sem var stærsti kröfu­hafi bank­anna á árunum eftir hrun. Sigurður Val­týs­son, for­svars­maður Frigusar II, gagn­rýndi harð­lega hvernig staðið var að söl­unni á Klakka og full­yrti að þar hefði Lind­ar­hvoll selt rík­is­eignir til sér­val­inna aðila án þess að gæta að lögum og reglum. Nú liggur fyrir að Lind­ar­hvoll gekk lengra í upp­lýs­inga­leynd en lög heim­ila þegar Frigusi var synjað um upp­lýs­ingar um sölu­ferlið. 

Eins og Stundin hefur áður fjallað um er félagið Lind­ar­hvoll einka­að­ili og óbundið af stjórn­sýslu­lögum í starf­semi sinni. Umboðs­maður Alþingis benti sér­stak­lega á þetta þegar frum­varpið um stofnun Lind­ar­hvols var til umfjöll­unar í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis árið 2016, en fram kom í árs­skýrslu umboðs­manns fyrir 2015 að oft gætti tregðu hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum til að fylgja reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins við ráð­stöfun opin­berra eigna. Í til­viki stöð­ug­leika­eign­anna var umsýslan falin einka­hluta­fé­lagi sem svo útvi­staði megn­inu af starf­semi sinni til lög­manns­stof­unnar Íslaga í eigu Steinars Þórs Guð­geirs­sonar. Stofan fékk 38,8 millj­ónir króna frá Lind­ar­hvoli ehf. árið 2016 en árs­reikn­ingur fyrir 2017 hefur ekki verið birtur.

Að því er fram kemur á vef Lind­ar­hvols hefur félagið nú lokið öllum þeim verk­efnum sem því voru falin með samn­ingi við fjár­mála­ráðu­neytið frá apríl 2016 um úrvinnslu og umsýslu stöð­ug­leika­eigna. Samn­ing­ur­inn hefur fallið niður og félag­inu verður slitið á næst­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lindarhvoll

Ríkisendurskoðandi: „Sigurður hafði ekki umboð til að hafa afskipti af málum“
FréttirLindarhvoll

Rík­is­end­ur­skoð­andi: „Sigurður hafði ekki umboð til að hafa afskipti af málum“

Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi segir dreif­ingu grein­ar­gerðar Sigurðar Þórð­ar­sonar, setts rík­is­end­ur­koð­anda með Lind­ar­hvoli, vera lög­brot. Grein­ar­gerðin hafi ekk­ert erindi átt út úr húsi Rík­is­end­ur­skoð­unar. Þá hafi Sigurður alls ekki haft fullar heim­ildir rík­is­end­ur­skoð­anda í störfum sínum, ólíkt því sem haldið hafi verið fram.
Sigurður Þórðarson: „Vegið alvarlega að starfsheiðri mínum“
FréttirLindarhvoll

Sigurður Þórð­ar­son: „Vegið alvar­lega að starfs­heiðri mínum“

Settur rík­is­end­ur­skoð­andi vegna Lind­ar­hvols, Sigurður Þórð­ar­son, gerði margar og harð­orðar athuga­semdir við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar í bréfi sem hann sendi Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis í febr­úar 2021. Sagði hann meðal ann­ars að Rík­is­end­ur­skoðun rang­túlk­aði bæði gögn um virð­is­aukn­ingu stöð­ug­leika­eigna, sem og skrif hans sjálfs um stjórn­skipu­lag félags­ins.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár