Fjögur hundruð börn bíða eftir húsnæði hjá borginni

Mörg hund­ruð börn í Reykja­vík bíða eftir því að for­eldr­arnir fái úthlutað félags­legu hús­næði hjá borg­inni. Þetta er þó aðeins topp­ur­inn á ísjak­anum því ein­ungis verst setta fólkið getur skráð sig á biðlist­ann, sem er lengri en í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins þrátt fyrir gefin lof­orð.

Fjögur hundruð börn bíða eftir húsnæði hjá borginni
Lifði við heilsu­spill­andi aðstæður Valdís Stef­áns­dóttir er með önd­un­ar­færa­sjúk­dóm, en þurfti að búa í mik­illi svifryks­mengun við Miklu­braut vegna svifa­seins og ósveigj­an­legs félags­legs hús­næð­is­kerfis. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nú bíða 954 eftir félags­legu hús­næði hjá Félags­bú­stöðum Reykja­víkur, þar af eru 259 barna­fjöl­skyldur, aðal­lega ein­stæðar mæður, með 418 börn. Helm­ingur hefur beðið skemur en í tvö ár en fimmt­ungur hefur beðið lengur en fimm ár.

Aðrir berj­ast um á hæl og hnakka á frjálsum hús­næð­is­mark­aði og borga oft miklu meira en helm­ing allra ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í leigu. Þetta er stað­reynd við lok kjör­tíma­bils meiri­hlut­ans í Reykja­vík og helstu máls­bæt­urnar eru þær að ástandið er síst betra ann­ars staðar. 

Þrátt fyrir hástemmda umræðu fyrir síð­ustu kosn­ingar um úrbætur í hús­næð­is­málum virð­ist því of lítið gert til að leysa bráða­vanda þessa fólks. Enginn er á þessum biðlista nema hann hafi mjög lágar tekjur. Þarna er því fátæk­asta fólkið í Reykja­vík að leita að hús­næði í umhverfi þar sem leiga hefur nán­ast tvö­fald­ast frá því eftir hrun. 229 þeirra sem eru á frjálsum mark­aði og bíða fá þó sér­tækar hús­næð­is­bætur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár