Stórfelldur laxadauði hjá Arnarlaxi vegna sjávarkulda

Eldislax hefur drep­ist hjá Arn­ar­laxi vegna sjáv­ar­kulda. Umhverf­is­stofnun stað­festir vit­neskju um málið og óskaði svara frá Arn­ar­laxi eftir að hafa fengið ábend­ingu um það. Arnarlax hefur ekki svarað spurn­ingum Stund­ar­innar um málið síð­ustu þrjá daga. Eft­ir­lits­starf Arnarlax tekið til skoð­unar.

Stórfelldur laxadauði hjá Arnarlaxi vegna sjávarkulda
Drepst vegna kulda Eldislax getur drep­ist vegna mik­ils sjáv­ar­kulda en lax­inn hættir þá að éta og getur drep­ist. Myndin er tekin við höfn­ina á Tálkna­firði í síð­ustu viku og sýnir fullt kar af eld­is­laxi sem hefur drep­ist í í eld­iskvíum í firð­inum upp á síðkastið.

Stór­felldur laxa­dauði hefur átt sér stað í lax­eld­iskvíum Arnarlax í Arn­ar­firði og Tálkna­firði síð­ustu daga vegna mik­ils sjáv­ar­kulda. Tveir bátar hafa unnið við það nær stans­laust á Tálkna­firði að flytja dauðan lax úr kví­unum í firð­inum og til hafnar þaðan sem keyrt er með fisk­inn í flutn­inga­bílum til Hafn­ar­fjarðar og hann nýttur í gælu­dýra­fóður. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar. 

Dauði eld­is­laxa vegna sjáv­ar­kulda er vanda­mál sem komið getur upp í lax­eldi og hefur það áður leitt til tjóns í íslensku lax­eldi í sjó í gegnum tíð­ina. Þetta var til dæmis eitt af helstu vanda­mál­unum í lax­eld­inu sem reynt var við strendur lands­ins á seinni helm­ingi tutt­ug­ustu ald­ar­innar. Eitt af því sem ger­ist við mik­inn sjáv­ar­kulda er  að eld­is­lax­inn verður við­kvæm­ari þar sem hann hættir að éta vegna kuld­ans og hann getur hlotið hreist­urs­skemmdir. Nið­ur­staðan er: Stór­felldur laxa­dauði. Fóðrið sem dælt er í eld­iskvíar nýt­ist því heldur ekki eins vel og þegar hlýrra er og lax­inn étur eins og vera ber og sest fóðrið því í meira mæli á sjáv­ar­botn­inn.  

 

Svarar enguStundin hefur reynt að fá svör um málið frá Víkingi Gunn­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Arnarlax, síðan á föstu­dag­inn en án árang­urs.

Hafa ekki svarað spurningum

Arnarlax verst, eins og er, allra frétta af mál­inu. Stundin spurði Arnarlax um málið á föstu­dag­inn var en þá sagði Víkingur Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, að hann myndi svara fyr­ir­spurn­inni um málið eftir helgi. „Við munum svara þessu eftir helg­ina.“ Þegar Stundin bað Víking um svör um málið nú í morgun sagði hann í tölvu­pósti: „Svör okkar munu ber­ast í dag.“

Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, hefur heldur ekki svarað fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar um málið.  

Stundin getur ekki full­yrt hversu mikið af laxi hefur drep­ist hjá Arn­ar­laxi vegna máls­ins en sam­kvæmt einni heim­ild er um að ræða tugi tonna á dag, jafn­vel um 100 tonna, sem flutt hafa verið á land í Tálkna­firði með bát­unum tveimur um margra daga skeið. 

„Þau svör feng­ust að dauði hefði auk­ist vegna kulda og með­höndl­unar á fiski í slát­ur­kví.“

Mikill fugl vomandi yfir kvíunum

Umhverf­is­stofnun stað­festir að stofn­unin hafi átt í sam­skiptum við Arnarlax vegna máls­ins. Þetta segir Björn Þor­láks­son, upp­lýs­inga­full­trúi Umhverf­is­stofn­unar. Svo virð­ist sem frum­kvæðið að þeim sam­skiptum hafi komið frá Umhverf­is­stofnun eftir að ábend­ing barst um að mikið fugla­ger sæist vom­andi yfir eld­iskvíum Arnarlax í leit að æti. Í kjöl­farið, þann 7. mars, sendi Umhverf­is­stofnun bréf til Arnarlax um málið og fékk þau svör að eitt­hvað af eld­is­laxi hefði drep­ist í kvíum fyr­ir­tæk­is­ins. 

Orðrétt segir í svari Björns fyrir hönd Umhverf­is­stofn­unar: „Umhverf­is­stofnun sendi Arn­ar­laxi fyr­ir­spurn þann 7. mars sl. vegna ábend­ingar sem barst stofn­un­inni um fugla­ger við athafna­svæði Arnarlax í Hrings­dal. Þau svör feng­ust að dauði hefði auk­ist vegna kulda og með­höndl­unar á fiski í slát­ur­kví. Fram kom að dauði fisk­ur­inn safn­að­ist fyrir í botni kvíar og honum væri dælt um borð í báta Arnarlax.  Við þetta getur mynd­ast fitu­skán á yfir­borði kvíar sem fuglar reyna að ná í.  Lífrænum úrgangi er sam­kvæmt því sem fram kemur í svörum frá Arn­ar­laxi safnað í lok­aða frysti­gáma og hann svo nýttur í mjölvinnslu. Allar kvíar Arnarlax eiga að vera með fugla­net, en netið er fjar­lægt meðan tæm­ing stendur yfir.“ 

„Umhverf­is­stofnun gerir ráð fyrir að fara nánar yfir ráð­staf­anir rekstr­ar­að­ila í eft­ir­liti.“

Taka eftirlit Arnarlax til skoðunar

Umhverf­is­stofnun segir að stofn­unin muni í kjöl­farið fari nánar yfir eft­ir­lits­starf Arnarlax með eldi sínu: „Ofan­greint skýrir sam­kvæmt svörum frá Arn­ar­laxi aukna umferð/vinnu við svæðið og ágang fugla. Umhverf­is­stofnun gerir ráð fyrir að fara nánar yfir ráð­staf­anir rekstr­ar­að­ila í eft­ir­liti. Rekstr­ar­að­ili starfar eftir ASC umhverf­is­staðl­inum sem er alþjóða stað­all í fisk­eldi og gerir kröfur um góðar skrán­ingar á fram­leiðslu og afföllum, þar með tal­inn dauð­fisk,“ segir í skrif­legu svari Umhverf­is­stofn­unar. 

Tekið skal fram að svar Umhverf­is­stofnun á ein­göngu við um laxa­dauð­ann í Arn­ar­firði en ekki Tálkna­firði. 

Umhverf­is­stofnun hefur eft­ir­lit með þeim hluta starf­semi lax­eld­is­fyr­ir­tækja sem lýtur að dauð­fiski svoköll­uðum, þegar eld­is­lax­inn drepst í kví­unum og getur mögu­lega valdið nátt­úru­spjöllum. Hreinsa ber lax­inn úr kví­unum og eiga eld­is­fyr­ir­tækin að koma honum í land sem fyrst. Í þessu til­felli virð­ist frum­kvæði Umhverf­is­stofn­unar hafa byggt á ábend­ingu utan­að­kom­andi aðila en það var ekki þannig að Arnarlax til­kynnti stofn­un­inni um laxa­dauð­inn líkt og fyr­ir­tækið á að gera.

Mat­væla­stofnun er einnig með­vituð um laxa­dauð­ann sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Svör um málið höfðu ekki borist frá Mat­væla­stofnun þegar frétt Stund­ar­innar var birt 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár