Launa­hæstu þing­menn­irnir Íslenskir þing­manna fá hærri laun en kollegar þeirra á Norð­ur­lönd­unum. Mynd: Pressphotos.biz

Bæta kjör sín umfram almenning

Íslenskir þing­menn eru launa­hæstu þing­menn­irnir á Norð­ur­löndum og hafa hækkað langt umfram almenn­ing í launum und­an­farin ár og ára­tugi. Þeir brjóta reglur um þing­far­ar­kostnað og taka sér meira fé úr rík­is­sjóði en regl­urnar segja til um án þess að vera dregnir til ábyrgðar.

Íslenskir þing­menn fá hærra þing­far­ar­kaup en þing­menn í Svíþjóð, Noregi og Finn­landi. Laun þeirra eru svipuð og hjá dönskum þing­mönnum, nokkru lægri en hjá breskum þing­mönnum og mun lægri en tíðkast í Þýska­landi. 

Þetta er nið­ur­staðan þegar grunn­laun þing­manna í Evr­ópu­ríkjum eru borin saman miðað við kaup­mátt­ar­jöfnuð. Ef litið er til grunn­launa þing­manna á gengi íslensku krón­unnar í jan­úar 2018 án kaup­mátt­ar­jöfn­unar eru íslenskir þing­menn hins vegar lang­launa­hæstu þing­menn Norð­ur­land­anna.

Stuðst er við síð­ar­nefndu aðferð­ina í nýlegri skýrslu starfs­hóps sem rík­is­stjórnin skip­aði um mál­efni kjara­ráðs. Út frá þeim mæli­kvarða eru mán­að­ar­leg grunn­laun íslenskra þing­manna 263 þús­und krónum hærri en grunn­laun sænskra þing­manna og 186 þús­und krónum hærri en laun danskra kollega þeirra. Er íslenska þing­far­ar­kaupið 75 pró­sentum hærra en með­al­þing­far­ar­kaup í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins. 

Hneyksl­un­ar­alda fór um íslenskt sam­fé­lag þegar Kjararáð hækk­aði laun alþing­is­manna um rúm­lega 44 pró­sent í einu skrefi, eða um 338 þús­und krónur á mán­uði, þann 29. októ­ber 2016. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, hvatti þing­heim til að hnekkja ákvörð­un­inni með laga­setn­ingu og ákvað að gefa launa­hækk­un­ina sem féll honum sjálfum í skaut til góð­gerða­mála. 

Alþingi lét hins vegar ákvörðun Kjara­ráðs standa. Þannig nema nú mán­að­ar­legar launa­greiðslur þing­manna 1.101 þús­und krónum og eru 65 pró­sentum hærri en með­al­laun Íslend­inga.

Launa­hækk­unin var rétt­lætt á þeim for­sendum að með henni væri verið að leið­rétta kjör þing­manna til sam­ræmis við almenna launa­þróun. Raunin er hins vegar sú að laun þing­manna hafa hækkað langt umfram laun almenn­ings í land­inu. 

Þing­far­ar­kaup hækk­aði um 133,6 pró­sent á tíma­bil­inu 2006 til 2016. Á sama tíma hækk­aði launa­vísi­tala Hag­stof­unnar um 106,9 pró­sent. Ef litið er lengra aftur í tím­ann kemur í ljós að þing­far­ar­kaup hækk­aði um 639 pró­sent á tíma­bil­inu 1989 til 2016 á meðan launa­vísi­talan hækk­aði um 455 pró­sent. 

Þannig hefur stjórn­mála­stéttin fengið kjara­bætur langt umfram almenn­ing und­an­farin ár og ára­tugi. Eftir launa­hækk­un­ina í októ­ber 2016 og tregðu þing­manna til að hnekkja ákvörðun Kjara­ráðs eru Íslend­ingar sú Norð­ur­landa­þjóð sem státar af launa­hæstu þing­mönn­unum og jafn­framt launa­hæstu ráð­herr­unum. 

Þingmenn tóku sér meira en þeir máttu

Gott þing­far­ar­kaup og föst end­ur­greiðsla starfs- og ferða­kostn­aðar virð­ist þó ekki duga öllum þing­mönnum. Und­an­farnar vikur hafa komið fram upp­lýs­ingar sem varpa nýju ljósi á hve frjáls­lega ein­stakir þing­menn hafa umgeng­ist reglur um þing­far­ar­kostnað. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár