Gat myndaðist á eldiskví hjá Arnarlaxi: Leynd ríkir um starfslok skipstjóra

Í sept­em­ber í fyrra mynd­að­ist gat á eld­is­kví hjá Arn­ar­laxi á Vest­fjörðum. Skip­stjóra hjá Arn­ar­laxi var sagt upp störfum í kjöl­farið. Mannleg mis­tök ollu gat­inu. Fram­kvæmda­stjóri Arnarlax segir ekk­ert annað til­felli um gat á eld­is­kví hafa komið upp í rekstr­inum í fyrra.

Gat myndaðist á eldiskví hjá Arnarlaxi: Leynd ríkir um starfslok skipstjóra
Eina til­fellið Víkingur Gunn­ars­son segir að umrætt gat sem mynd­að­ist í kví Arnarlax í Arn­ar­firði sé það eina sem mynd­að­ist hjá fyr­ir­tæk­inu í fyrra. Hann segir engar líkur á slysa­slepp­ingum út um gatið. Mynd: MBL/Helgi Bjarnason

Gat mynd­að­ist á eld­is­kví hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi í Arn­ar­firði í sept­em­ber síð­ast­liðnum og var Mat­væla­stofnun til­kynnt um gatið þann 8. þess mán­aðar. Mat­væla­stofnun er ein af þeim rík­is­stofn­unum sem hefur eft­ir­lit með starf­semi lax­eld­is­fyr­ir­tækja. Gatið var 3,5 cm sinnum 5,25 cm stórt og flat­ar­mál þess því rétt rúm­lega 18 sentí­metrar. Mat­væla­stofnun fékk skýrslu um gatið frá Arn­ar­laxi en hún var ekki birt opin­ber­lega líkt og tvær skýrslur frá eld­is­fyr­ir­tæk­inu um nýleg óhöpp í eldi þess í Tálkna­firði og í Arn­ar­firði á Vest­fjörðum nú í febr­úar.  

 

Gatið í kvínniMynd var tekin af gat­inu í kvínni og var hún send til MAST í sér­stakri kaf­ara­skýrslu. Arnarlax og MAST segja að gatið hafi verið of lítið til að lax­inn í kvínni hefði getað kom­ist út um það

 

Vandamálið með slysasleppingar

Frétt Stund­ar­innar um eld­is­kví Arnarlax í Tálkna­firði hefði sokkið að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár