Ný stétt Konurnar geta ekki leitað réttar síns án þess að eiga á hættu að verða vísað úr landi. Lögin hvetja þannig til þess að kon­unar láti mis­rétti og áreitni á vinnu­stað yfir sig ganga. Þá getur hjóna­skiln­aður einnig leitt til þess að þær missa dval­ar­leyfið.

Hvorki fórnarlömb né vinnudýr

„Það er að verða til tví­skipt sam­fé­lag, ný lág­stétt fólks af erlendum upp­runa sem til­heyrir við­kvæmum hópi í sam­fé­lag­inu, nán­ast stétt þjón­ustu­fólks,“ segir Nichole Leigh Mosty, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar. Þetta fólk hefur tak­mark­aða mögu­leika á að sækja rétt sinn í sam­fé­lag­inu.

Það vakti mik­inn óhug þegar konur af erlendum upp­runa birtu sögur sínar opin­ber­lega í tengslum við Metoo-átakið því þær þóttu end­ur­spegla hræði­legan veru­leika. Þar gaf að líta sögur af ofbeld­is­fullum eig­in­mönnum og kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni á heim­ilum og vinnu­mark­aði. En slíkar sögur eru ekki nýjar af nál­inni. Flest höfum við heyrt eitt­hvað álíka og við vitum að konur úr þessum hópi eru fjöl­menn­asti hóp­ur­inn í Kvenna­at­hvarf­inu. Ofbeldið getur komið upp alls staðar, á heim­ilum, í kerf­inu og á vinnu­stöðum. Lögin gera það að verkum að hluti kvenn­anna getur ekki leitað réttar síns án þess að eiga á hættu að verða reknar úr landi. Við þekkjum líka dæmi þess að konur hafi brot­ist í gegnum langt og strangt nám til að mæta höfnun á vinnu­mark­aði. En hvað er sam­fé­lag okkar að gera til að hjálpa þeim til að brjót­ast úr aðstæðum sínum?

Kvörtun getur þýtt brottvísun

Claudie Ashonie Wilson hér­aðs­dóms­lög­maður bendir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár