Unga fólkið vill aðskilnað ríkis og kirkju

Ný könnun sýnir að um 56 pró­sent Íslend­inga vilja aðskilnað ríkis og kirkju. Ungt fólk, Reyk­vík­ingar og kjós­endur Pírata eru lík­leg­astir til að vilja aðskilnað.

Unga fólkið vill aðskilnað ríkis og kirkju

Rúmlega 55 pró­sent Íslend­inga eru hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju á meðan hátt í 22 pró­sent eru and­vígir aðskiln­aði. Þá eru tæp­lega 23 pró­sent í með­al­lagi hlynntir eða and­vígir. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði í sam­starfi við Stundina. 

Tölu­verður munur er á afstöðu fólks eftir aldri, en yngri ald­urs­hópar eru mun lík­legri til að vera hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju en þeir sem eru eldri. Þannig eru rúm­lega 75 pró­sent svar­enda á aldr­inum 18 til 29 ára hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju, en aðeins 8,6 pró­sent í þeim ald­urs­hópi eru and­vígir. Hins vegar eru 40 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 60 ára og eldri hlynntir aðskiln­aði, en 34,8 pró­sent eru and­vígir. 

Búseta hefur einnig áhrif á afstöðu fólks til aðskiln­aðar, en 64,4 pró­sent Reyk­vík­inga eru hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju á meðan ein­ungis 37,5 pró­sent íbúa á Norð­ur­landi vilja aðskilnað. Alls eru 56,5 pró­sent íbúa á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum hlynnt aðskiln­aði, 52,9 íbúa í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur, 47,8 pró­sent íbúa á Aust­ur­landi og 46,9 pró­sent íbúa á Suð­ur­landi og Reykja­nesi.

Afstaða fólks til aðskiln­aðar ríkis og kirkju er einnig breyti­leg eftir stjórn­mála­skoð­unum. Rúmlega 89 pró­sent þeirra sem kjósa Pírata eru hlynntir aðskiln­aði og aðeins rúm­lega sex pró­sent eru and­vígir. Kjós­endur Mið­flokks­ins eru ólík­leg­astir til að vilja aðskilnað ríkis og kirkju, en 19,4 pró­sent þeirra sem kjósa Mið­flokk­inn eru hlynntir aðskiln­aði en 39,5 pró­sent eru and­vígir aðskiln­aði. Þá segj­ast 75,5 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna vilja aðskilnað, 70,1 pró­sent kjós­enda Við­reisnar og 62,3 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar. Meiri and­stöðu var að finna meðal kjós­enda ann­arra flokka; 23,7 pró­sent kjós­enda Flokks fólks­ins eru hlynntir aðskiln­aði, 26,3 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins og 37,4 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Maskína spurði síð­ast um afstöðu til aðskiln­aðar ríkis og kirkju árið 2015. Ekki er mark­tæk breyt­ing á afstöðu milli 2015 og 2018 en árið 2015 sögð­ust 49 pró­sent lands­manna vera hlynntir aðskiln­aði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár