Rík­is­stjórn í myndun Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Viðreisn þykir koma til greina frekar en Inga Sæland við myndun nýrrar rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins þvert yfir miðju, án Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Mynd: Pressphotos

Unnið að ríkisstjórn undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur

Katrín Jak­obs­dóttir verður for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins, Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Pírata og jafn­vel Við­reisnar, ef við­ræður flokk­anna ganga eftir. Flokkar með 75 til 86 pró­sent hlut­fall karla verða skildir eftir í stjórn­ar­and­stöðu ef þetta gengur eftir.

Unnið er að myndun nýrrar rík­is­stjórnar án Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem Katrín Jak­obs­dóttir veitir for­sæti. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er fjöl­flokka rík­is­stjórn yfir miðju á teikni­borð­inu, eins og Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, boð­aði í gær. Þessi stjórn myndi brjóta blað í stjórn­mála­sögu Íslands, með fimm til sex flokka í rík­is­stjórn.

Mikil leynd er yfir þeim óform­legu stjórn­ar­mynd­un­ar­þreif­ingum sem standa yfir og halda flokk­arnir spil­unum þétt að sér. Við­mæl­endur Stund­ar­innar úr þing­flokk­unum eru mis­bjart­sýnir en telja þó lík­legt að fram­haldið skýrist í dag eða á morgun. 

Karlaflokkar settir í stjórnarandstöðu

Sú rík­is­stjórn sem nú er efst á teikni­borð­inu und­an­skilur þrjá þing­flokka sem eru með hlut­fall karla á bil­inu 75 til 86 pró­sent; Sjálf­stæð­is­flokk Bjarna Bene­dikts­sonar, Miðflokk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Flokk fólks­ins undir for­mennsku Ingu Sædal. Ekki er þó útséð með aðkomu Flokks fólks­ins að rík­is­stjórn­inni, en lík­legra er að Viðreisn verði valin fram yfir hann, sem eykur frjáls­lynda áherslu, en tak­markar um leið tekju­aukn­ingu rík­is­sjóðs í gegnum skatta­hækk­anir. 

For­sæt­is­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn yrði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Katrín hefur notið trausts þvert á flokka. Í skoð­ana­könnun sem Gallup fram­kvæmdi í fyrra kom fram að um 40 pró­sent lands­manna vildu að Katrínu Jak­obs­dóttur sem for­sæt­is­ráð­herra. 25,6 pró­sent vildu Bjarna Bene­dikts­son og 14,3 pró­sent Sigurð Inga Jóhanns­son.

Áhersla á innviði

Ef fimm til sex flokka rík­is­stjórn ætti að ganga upp þyrftu allir flokkar að gefa veru­lega eftir.

Vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Lilja Alfreðs­dóttir, átti frum­kvæði að því að slá Evr­ópu­málin út af borð­inu í við­tali við Rík­is­út­varpið í gær, þegar hún sagði Fram­sókn­ar­flokk­inn leggj­ast ein­dregið gegn því að kosið yrði um aðild eða aðild­ar­við­ræður í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á kjör­tíma­bil­inu. 

Þor­gerður innViðreisn verður lík­lega hluti af rík­is­stjórn yfir miðju, fremur en Flokkur fólks­ins.

Þetta yrði erfitt fyrir Sam­fylk­ing­una og Viðreisn, sem og að hluta Pírata vegna áherslu þeirra á beint lýð­ræði, en þess ber að geta að Viðreisn gaf eftir nán­ast að fullu í Evr­ópu­málum við myndun rík­is­stjórnar með Sjálf­stæð­is­flokki í jan­úar, þegar fall­ist var á að staðið yrði í vegi fyrir þing­máli um þjóð­ar­at­kvæði þar til undir lok kjör­tíma­bils.

Ekki er talið að mik­ill ágrein­ingur sé um að fara svo­kall­aða sviss­neska leið í hús­næð­is­málum, sem var eitt helsta áherslu­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins í kosn­inga­bar­átt­unni. Í henni felst að greiðslur í líf­eyr­is­sjóði virki sem inn­borgun á fyrstu íbúð. 

Þá er sam­hljómur um útgjalda­aukn­ingu til inn­viða­fjár­fest­inga. Allir flokkar hafa lofað að leggja meira til heil­brigð­is­mála. Hins vegar gæti ásteit­ing­ar­steinn verið í skatta­málum, þar sem Vinstri grænir og Sam­fylk­ing hafa viljað hækka skatta á stór­eigna- og/eða hátekju­fólk, en Viðreisn staðið gegn skatta­hækk­unum. Píratar eru opnir í skatta­málum, en hafa lagt til að fjár­magnstekju­skattur verði hækk­aður úr 20 pró­sent í 30 pró­sent.

Óljóst er hvernig útfærsla á lof­orðum ein­stakra flokka getur gengið eftir, en Flokkur fólks­ins hefur til að mynda lofað því að per­sónu­af­sláttur verði tvö­fald­aður strax, Sam­fylk­ing lofað tvö­földun barna­bóta, en Viðreisn lagt áherslu á að skuldir rík­is­sjóðs verði greiddar og þannig dregið úr vaxta­kostn­aði.

Rofið sam­bandSig­mundur Davíð Gunn­laugs­son lét Sigurði Inga Jóhanns­syni eftir for­sæt­is­ráðu­neytið í fyrra eftir að hags­muna­á­rekstur sem kom fram í Panama­skjölin gerði honum ómögu­legt að halda áfram. Síðan tók Sigurður Ingi af skarið og bauð sig fram í for­mennsku hjá Fram­sókn­ar­flokks­ins, við mikla óánægju Sig­mundar.

Stjórn með Sjálfstæðisflokki gekk ekki

Til­raunir til mynd­unar rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna strönd­uðu í gær, en sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar vildu Vinstri grænir að Sam­fylk­ing yrði aðili að slíkri rík­is­stjórn. 

Þá er talið að sam­band Sigurðar Inga Jóhanns­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sé of stirt til þess að reyn­andi sé að stofna til sam­starfs þeirra á milli, en hins vegar er mál­efna­legur sam­hljómur milli Fram­sóknar- og Mið­flokks.

Því er enn mikil óvissa um rík­is­stjórn­ar­myndun og allt eins mögu­legt að horfið verði aftur að þeim mögu­leika að mynda rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Flokks fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár