Reykvíkingar úti að aka í samgöngumálum

Um 83 pró­sent borg­ar­búa fara keyr­andi í vinn­una, sam­kvæmt skýrslu Hagstofu Evr­ópu­sam­bands­ins. Einungis ein Evr­ópu­borg stendur sig verr en Reykja­vík. Formaður Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl segir það hafa verið póli­tíska ákvörðun að byggja bíla­borg.

Reykvíkingar úti að aka í samgöngumálum

Reykja­vík og Nikósía, höf­uð­borg Kýpurs, eru einu höf­uð­borg­irnar í Evrópu þar sem hlut­fall þeirra sem ferð­ast með einka­bíl til vinnu er yfir 75 pró­sent. Þá er hlut­fall þeirra sem nota almenn­ings­sam­göngur lang­minnst í þessum tveimur borgum, auk Vallettu, höf­uð­borg Möltu. 

Í nýlegri skýrslu Hagstofu Evr­ópu­sam­bands­ins eru sam­göngu­mátar í Evr­ópu­borgum meðal ann­ars bornir saman. Reykja­vík sker sig nokkuð úr, en alls fara 83 pró­sent borg­ar­búa akandi í vinn­una. 

Í frétt Citylab, þar sem farið er yfir nið­ur­stöður skýrslu Hagstofu Evr­ópu­sam­bands­ins, segir að mögu­lega séu það land­fræði­legir þættir sem valda því að stjórn­völdum í borgum eyríkja hefur ekki tek­ist að byggja upp nógu skil­virkar almenn­ings­sam­göngur. Flókin póli­tísk saga Nikósíu geri borg­ar­skipu­lag einnig erfitt, en mið­borg Reykja­víkur sé aftur á móti stað­sett á þröngu nesi sem hafi hvatt til ótrú­legrar útbreiðslu jafn lít­illar borgar. Í grein­inni segir að þessar „jað­ar­þjóðir“ Evrópu séu að drag­ast aftur úr þegar kemur að stefnu­mótun …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár