Alþingi þverneitar að veita ópersónugreinanlegar upplýsingar

Skrif­stofa Alþingis vill ekki segja frá hæstu ein­stöku end­ur­greiðslum vegna akst­urs þing­manna á einka­bílum. Stundin kærir synj­un­ina til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Alþingi þverneitar að veita ópersónugreinanlegar upplýsingar
Keyrir mikið en svarar ekki Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, er einn þeirra þing­manna sem keyrir mikið. Hann hefur ekki viljað veita upp­lýs­ingar um akst­urs­greiðslur sínar.

„Ég hef veitt þær upp­lýs­ingar sem ég heim­ild til,“ segir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, þegar hann svarar þeirri spurn­ingu fyrir hönd þings­ins hvort Stundin geti fengið aðgang að upp­lýs­ingum um hæstu end­ur­greiðsl­urnar til þing­manna vegna akst­urs þeirra á einka­bílum. Stundin bað um lista yfir hæstu end­ur­greiðsl­urnar án þess þó að nafn þing­manna kæmu fram á list­anum.  

Helgi hefur áður hafnað beiðni Stund­ar­innar um að veita upp­lýs­ingar um end­ur­greiðsl­urnar til allra þing­manna ásamt nöfnum þeirra og vís­aði hann meðal ann­ars til 9. greinar upp­lýs­inga­laga synj­un­inni til stuðn­ings. Sú synjun barst þegar Stundin vann grein um akst­urs­gjöld þing­manna – end­ur­greiðslur Alþingis til þing­manna á útlögðum kostn­aði þeirra vegna akst­urs á einka­bílum í vinnu­tengdum erindum – sem birt­ist í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar. Skrif­stofa Alþingis sendi Stund­inni ein­ungis upp­lýs­ingar um heild­ar­greiðslur til þing­manna vegna end­ur­greiðsln­anna. Á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili og því síð­asta nema þær um 171 milljón króna líkt og bent var á í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár