Benedikt fundaði með styrkveitendum Viðreisnar í miðjum stjórnarmyndunarviðræðum

Formaður Við­reisnar hitti for­stjóra Brims og HB Granda og fund­aði með þeim um sjáv­ar­út­vegs­mál dag­inn áður en hann átti frum­kvæði að því að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við Vinstri græn, Pírata og Sam­fylk­ingu var slitið. Útgerð­ar­fé­lögin veittu Viðreisn veg­lega styrki.

Benedikt fundaði með styrkveitendum Viðreisnar í miðjum stjórnarmyndunarviðræðum
Úr stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum Benedikt taldi að ekki næð­ist saman. Mynd: Pressphotos

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, fund­aði með tveimur styrk­veit­endum flokks­ins úr hópi útgerð­ar­manna dag­inn áður en það slitn­aði upp úr stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar í lok nóv­em­ber 2016. 

Guð­mundur Krist­jáns­sonfor­stjóri Brims.

Hann hitti Vilhjálm Vil­hjálms­son, for­stjóra HB Granda, og Guðmund Krist­jáns­son kenndan við Brim á skrif­stofu þess síð­ar­nefnda þann 22. nóv­em­ber og ræddi við þá um sjáv­ar­út­vegs­stefnu Við­reisnar. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Rík­is­end­ur­skoðun birti á dög­unum styrktu bæði HB Grandi og Brim hf. Viðreisn um lög­bundið hámarks­fram­lag ein­stak­linga og lög­að­ila til stjórn­mála­sam­taka, í fyrra, eða um sam­tals 800 þús­und krónur.

Fundur Bene­dikts með Guðmundi og Vil­hjálmi vakti fjöl­miðla­at­hygli eftir að útvarps­mað­ur­inn Frosti Logason greindi frá því á Facebook að sést hefði til Bene­dikts við húsa­kynni Brims. Þá var hins vegar ekki vitað að Brim og HB Grandi væru í hópi þeirra fyr­ir­tækja sem veittu hæstu styrk­ina til Við­reisnar. Sem kunn­ugt er hafði Viðreisn aug­lýst sig sem flokk almanna­hags­muna gegn sér­hags­munum fyrir þing­kosn­ingar og sagst ætla að beita sér fyrir upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi, aðgerð sem full­trúar útgerð­ar­innar hafa ham­ast gegn.

„Ekki að ég sé ýja að ein­hvers­konar sam­særi hérna. En ef Benedikt hefur verið að funda með for­svars­mönnum Brims á Bræðra­borg­ar­stíg, dag­inn áður en hann til­kynnti Katrínu að hann hefði ekki sann­fær­ingu um að stjórn­ar­myndun tæk­ist, þá hlýtur það að hafa verið mjög örlaga­ríkur fundur,“ skrif­aði Frosti. 

Benedikt brást illa við ummælum útvarps­manns­ins og sak­aði hann um lág­kúru. Um leið við­ur­kenndi hann þó að hafa hitt útgerð­ar­menn­ina og fundað með þeim um sjáv­ar­út­vegs­mál og sjáv­ar­út­vegs­stefnu Við­reisnar þegar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna fimm stóðu sem hæst. „Það er rétt að Guð­mundur hafði sam­band við mig á þriðju­dag og sagð­ist vilja skilja „þessar vit­lausu hug­myndir Við­reisnar“ um mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi. Ég sagð­ist fagna því að fá að skýra þær fyrir honum og ætti einmitt lausan tíma klukkan fimm þennan dag. Við hitt­umst með Gylfa Ólafs­syni, aðstoð­ar­manni mínum, og Vil­hjálmi Vil­hjálms­syni í HB Granda, sem Guð­mundur sagði að hefði líka miklar efa­semdir um til­lögur Við­reisnar,“ skrif­aði Benedikt.

Daginn eftir fund­inn, þann 23. nóv­em­ber, greindi Benedikt Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna sem fór þá með stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið, frá því að hann hefði ekki sann­fær­ingu fyrir því að stjórn­ar­myndun tæk­ist og var við­ræð­unum slitið í kjöl­farið. Haft var eftir full­trúum ann­arra flokka í Stund­inni að Viðreisn hefði sýnt litla samn­inga­við­leitni; Benedikt hefði þagað á fundum og haft fátt til mál­anna að leggja. Viðreisn hefði staðið gegn því að ráð­ist yrði í auknar tekju­öfl­un­ar­að­gerðir til að hægt væri að standa undir útgjalda­aukn­ingu til heil­brigð­is­mála og inn­viða­fjár­fest­inga strax á árinu 2017. Á þessum tíma hafði þó náðst breið sam­staða meðal flokk­anna fimm um að látið yrði reyna á upp­boð á afla­heim­ildum í ein­hverri mynd, að minnsta kosti í til­rauna­skyni, en þá átti eftir greiða úr ýmsum álita­málum um útfærslu og fram­kvæmd slíkrar leiðar. 

Aftur var látið reyna á við­ræður flokk­anna fimm um stjórn­ar­myndun í des­em­ber þegar Píratar fóru með stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð for­seta. Þá slitn­aði einnig upp úr ferl­inu vegna ólíkra áherslna Við­reisnar og Vinstri grænna, eða eftir að Benedikt óskaði eftir fundi með Katrínu Jak­obs­dóttur og tjáði henni þá skoðun sína að erfitt yrði að brúa bilið milli ólíkrar stefnu Við­reisnar og Vinstri grænna og velti fyrir sér hvort rétt­ast væri að flokk­arnir slitu við­ræð­unum í sam­ein­ingu. 

„Ég veit ekki hvað gerð­ist á þeim fundi en þetta minnti mig á það sem gerð­ist í fyrri við­ræðum. Það var allt í einu engin trú á að þetta væri hægt,“ sagði Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata í við­tali við Stundina.

Stundin greindi frá því skömmu síðar að Katrín Jak­obs­dóttir hefði tjáð þing­flokki Vinstri grænna að for­maður Við­reisnar hefði sagst ekki haft trú á að við­ræð­urnar myndu skila árangri. Hann hefði hvatt til þess að þau færu sam­eig­in­lega með þau skila­boð inn á for­manna­fund­inn að of langt væri á milli flokk­anna.

Við­reisn­ar­fólk hefur þó kennt Vinstri grænum um að við­ræð­unum var slitið. „Einkum voru það áherslur VG í rík­is­fjár­málum, sjáv­ar­út­vegs­málum og land­bún­að­ar­málum sem stóðu fjarri áherslum hinna flokk­anna,“ sagði í til­kynn­ingu sem Viðreisn sendi út á sínum tíma. Þá hafa Píratar, m.a. Einar Brynj­ólfs­son þing­maður flokks­ins, bent á Björn Val Gíslason, frá­far­andi vara­for­mann Vinstri grænna, en hann var einn af full­trúum Vinstri grænna í fyrri stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum og lét hafa eftir sér í fjöl­miðlum, meðan þær seinni stóðu yfir, að betra væri að VG færi í stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum heldur en að mynduð yrði hrein hægri­st­jórn. 

Ekki náð­ist í Benedikt við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár