„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“

Þóra Jakobína Olsen Hrafns­dóttir fékk spurn­ingu sem hún gat ekki svarað, fór heim og íhug­aði svarið. Í kjöl­farið breytti líf hennar um stefnu.

„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“

Vorið 2002 sat ég við síma­vörslu hjá Já.is í hús­næði Pósts og síma á Akureyri. 

Við næsta borð sat systir mín sem er sjö árum eldri en ég, frá­skilin með tvo drengi á fram­færi – sama staða og ég var sjálf í. Við vorum á morg­un­vakt og það var lítið að gera en samt nóg til að trufla sam­tal ef við reyndum að tala saman, svo við sátum þegj­andi milli sím­tala. 

Ég var að ljúka sím­svari þegar systir mín teygði sig yfir lykla­borðið hjá mér og ýtti á blokkun sem lokaði borð­inu hjá mér. Ég leit við og sá að hún hafði blokkað sitt borð líka.

Hún horfði á mig spurn­ar­augum og spurði: „Ert þú ekki með iðn­skóla­gráðu?“

„Jú,“ svar­aði ég.

„Af hverju situr þú þá hér í þessu lág­launa­starfi við hlið­ina á mér sem hef enga menntun?“

Ég gat engu svarað, fór heim og íhug­aði spurn­ing­una með sjálfri mér og fór af stað að finna út mína mögu­leika. Á Akureyri var ekki mikið um val­mögu­leika svo ég fór að hugsa út fyrir Akureyri og mögu­lega búsetu ann­ars staðar.

Ég end­aði á að fá mér vinnu á leik­skóla þar sem ég hafði áður verið skóla­liði í grunn­skóla og þekkti skóla­starfið.

Ég vann í eitt ár á leik­skól­anum og skráði mig svo hjá Háskól­anum á Akureyri í grunn­skóla­kenn­ara­nám en mér leist betur á það en leik­skóla­kennar­ann.

Eftir útskrift á Akureyri hef ég bætt við mig mun meira námi við Háskóla Íslands og starfað í grunn­skólum á Akureyri og í Reykja­vík nú í yfir 20 ár. Og því­líkur heiður að fá að starfa með unga fólk­inu okkar alla daga.

Ég hugsa oft til systur minnar með kær­leika og þakk­læti fyrir spurn­ing­una og að hafa ýtt við mér.

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár