Íslenskir neytendur njóta ekki sömu verndar

Pró­fessor í Evr­ópu­rétti segir allt tal um að atvinnu­leysi á Spáni sé tengt Evr­ópu­sam­bands-aðild rangt. Það sé heimatíl­bú­inn vandi sem megi rekja ára­tugi aftur í tím­ann. Hún segir jafn­framt að aðild að ESB styrki stöðu neyt­enda, en það séu sann­ar­lega víti til þess að var­ast.

Mikið atvinnu­leysi í Evr­ópu­sam­bands­lönd­unum Ítalíu og Spáni er algjör­lega heima­til­bú­inn vandi að sögn pró­fess­ors í Evr­ópu­rétti við Háskóla Íslands. Maria Elvira Méndes Pinedo er spænsk-íslenskur pró­fessor hjá Háskóla Íslands og kennir og rann­sakar ESB og EES ásamt alþjóð­legum efna­hags­rétti. Hún segir stöðu neyt­enda á Íslandi styrkj­ast veru­lega gagn­vart efna­hags­kerf­inu gangi Íslend­ingar inn í ESB. Hún segir áhyggjur Íslend­inga af því að þeir hverfi í hít­ina með fáa þing­menn innan ESB rétt­mætar. Þar muni reyna á fag­mennsku Íslend­inga til þess að koma á banda­lögum við öfl­uga sam­herja við það að verja hags­muni og sjón­ar­mið íslensku þjóð­ar­innar. Hún segir það þó óhjá­kvæmi­lega styrkja stöðu Íslend­inga að eiga sæti við borðið þegar reglur og lög eru sett innan efna­hags­banda­lags­ins.

„En að sjálf­sögðu, ef Íslend­ingar vinna ekki sína heima­vinnu fyrir slíkt þing, ef þeir senda fjöl­skyldu­með­lim sem er van­hæfur, er hætt við að þeir nái ekki mark­miðum Íslend­inga í gegnum Evr­ópu­stofn­anir,“ áréttar hún.

Heimatilbúinn …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár