Kína hótar ESB gagnaðgerðum

„Made in Europe“ stefna Evr­ópu­sam­bands­ins til verndar störfum kallar fram hót­anir frá Kína um mót­væg­is­að­gerðir.

Kína hótar ESB gagnaðgerðum
Bakkað frá við­skipta­frelsi Emmanúel Macron Frakk­lands­for­seti, Xi Jinping, for­seti Kína, og Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, hitt­ast hér í Beijing í Kína 2023. Mynd: AFP

Stjórn­völd í Peking gagn­rýndu harð­lega í dag áætlun ESB sem miðar að því að efla iðnað sam­bands­ins gegn harðri sam­keppni frá Kína og hót­uðu gagn­að­gerðum ef hún yrði að veru­leika.

ESB kynnti í mars nýjar reglur undir slag­orð­inu „Fram­leitt í Evrópu“ (Made in Europe) fyrir fyr­ir­tæki sem reyna að fá aðgang að opin­beru fé í stefnu­mark­andi geirum, þar á meðal í bíla­fram­leiðslu, grænni tækni og stál­iðn­aði. Regl­urnar skylda fyr­ir­tækin til að upp­fylla lág­marks­kröfur um að íhlutir séu fram­leiddir innan ESB.

Tillagan, sem hefur taf­ist mán­uðum saman vegna deilna um aðgerð­irnar, er lyk­il­þáttur í við­leitni Evr­ópu­sam­bands­ins til að end­ur­heimta sam­keppn­is­for­skot sitt, draga úr hnignun iðn­að­ar­ins og koma í veg fyrir að hund­ruð þús­unda starfa glat­ist í harðri sam­keppni við Kína, sem hefur yfir­burði í grænni tækni.

Við­skipta­ráðu­neytið í Peking sagði að það hefði sent fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins athuga­semdir á föstu­dag þar sem Kína lýsti yfir „alvar­legum áhyggjum“ af lög­unum sem það kall­aði „kerf­is­bundna mis­munun“.

„Ef ESB … heldur áfram með lög­gjöf­ina og skaðar þar með hags­muni kín­verskra fyr­ir­tækja, mun Kína ekki eiga ann­arra kosta völ en að grípa til gagn­ráð­staf­ana til að verja með afger­andi hætti lög­mæt rétt­indi og hags­muni fyr­ir­tækja sinna,“ var­aði við­skipta­ráðu­neytið við í yfir­lýs­ingu.

Evrópsk fyr­ir­tæki í mörgum þeirra geira sem til­lagan varðar hafa lengi kvartað yfir því að þau standi frammi fyrir ósann­gjarnri sam­keppni frá kín­verskum keppi­nautum sem njóta mik­illa nið­ur­greiðslna kín­verska rík­is­ins.

Tillaga ESB, sem form­lega er þekkt sem „Industrial Accelerator Act“, bein­ist óbeint að kín­verskum fram­leið­endum raf­geyma og raf­knú­inna öku­tækja með því að krefj­ast þess að erlend fyr­ir­tæki gangi í sam­starf við evr­ópsk fyr­ir­tæki og miðli tækni­þekk­ingu þegar þau hefja starf­semi innan sam­bands­ins.

Kín­verska við­skipta­ráðið hjá ESB sagði í þessum mán­uði að áætl­unin mark­aði breyt­ingu í átt að vernd­ar­stefnu sem myndi hafa áhrif á við­skipta­sam­starf milli ESB og Kína.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár