Smáþörungarnir sem eiga að breyta heiminum

„Með bein­tengingu okkar við Hellis­heiðar­virkjun tekst okkur bókstaf­lega að breyta orku í matvæli,“ fullyrti framkvæmda­stjóri Vaxa Technologies. Fyrir­tækið byggir á að hægt sé að rækta smáþörunga til að „umbylta matvæla­iðnaðinum“ og sendir spirulina til vannærðra barna í Afríku. Ýmsar spurningar hafa hins vegar vaknað um reksturinn, markaðs­setningu og umdeilda útreikninga á kolefnis­einingum.

Íslensk-ísraelska fyrir­tækið VAXA Technologies, sem sérhæfir sig í smáþörunga­ræktun á Hellis­heiði, hefur selt þúsundir kolefnis­eininga byggða á umdeildum útreikningum til stór­fyrirtækja á borð við Arion banka.

Fyrir­tækið hefur haldið því fram að notast við 100 prósent hreina orku án þess að hafa uppruna­ábyrgðir því til stað­festingar. Slíkar ábyrgðir eru forsenda þess að geta haldið slíku fram.

Afskráningar á öllum kolefnis­einingum frá fyrir­tækinu voru stöðvaðar fyrir meira en ári síðan. Þegar fyrirtæki afskráir kolefnis­einingar þá eru þær teknar úr umferð og taldar upp á móti losun. Eftir það er ekki lengur hægt að selja eða nota þessar sömu einingar.

Engu að síður hafa mörg íslensk fyrir­tækið kolefnis­jafnað starfsemi sína með einingum frá þeim og kynnt opinber­lega.

I

Leitin að upprunaábyrgðum 

Markmið VAXA Technologies er að innleiða nýja vísinda­lega nálgun í matvæla­framleiðslu. Á vefsíðu …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þarna eru nýju fötum keisarans lýst ágætlega í löngu máli.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár