Gulir fossar gleðja

Í fyrsta sinn síðan 2023 flæða loðnu­hrogn í kör á Akranesi. „Vinnslan hófst á mánu­dag­inn,“ segir vinnslu­stjór­inn en mikil verð­mæti fel­ast í hrogn­unum.

Gulir fossar gleðja

Þó það gæti litið þannig út við fyrstu sýn þá er hvorki mjúkt smjör, kart­öflu­stappa né gylltur, þeyttur rjómi sem rennur ofan í sótt­hreinsuð plast­körin hjá Brimi á Akranesi þessa dag­ana, heldur lang­þráð loðnu­hrogn. Fölgulur hrogna­straum­ur­inn gleður mann­skap­inn sem skiptir með sér sól­ar­hrings­vöktum í léttu sjó­mistr­inu sem liggur yfir vinnslu­salnum á Skipa­skaga enda Skaga­menn almennt lengi verið ginn­keyptir fyrir gula litnum – gulir og glaðir.

„Við höfum ekki fengið loðnu síðan 2023, það hefur ekk­ert verið,“ segir Gunnar Her­manns­son, vinnslu­stjóri upp­sjáv­ar­afla hjá Brimi. Nánast eng­inn loðnu­kvóti var gef­inn út á land­inu síð­ast­lið­inn vetur og alls eng­inn vet­ur­inn á undan. Hér hafa menn saknað þessa smá­gerða fisks mikið. „Vinnslan hófst á mánu­dag­inn um leið og Venus kom inn, nú erum við að klára að vinna úr Svani,“ segir hann.

Svanur RE 45 hafi komið inn með full­fermi en Venus NS 150 sé mun stærra skip. „Þeir koma báðir með fimmtán hund­ruð …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár