Vinkonur í vínframleiðslu

Vin­kon­urnar og að eigin sögn vín­kon­urnar, Hrund Jóhanns­dóttir og Greta Clough, fóru nýlega í ferða­lag til Lett­lands og Eist­lands. Til­gangur ferð­ar­innar var að kynna sér fram­leiðslu á rabar­bara-freyði­víni þar í landi, eitt­hvað sem þær stöllur ætla sér að setja á fót hér á landi. Þær fengu nýverið styrk og stefna á að koma fyrstu vör­unni á markað á næsta ári.

Vinkonur í vínframleiðslu

Hug­myndin að vín­fram­leiðsl­unni fædd­ist til­tölu­lega nýlega að sögn Hrundar. „Það var bara eitt sum­ar­kvöld sem við sátum saman með vín­glas, eins og svo oft, og ræddum hversu spenn­andi það væri að fram­leiða eigið vín. Og þar sem við vissum að vín­viður þrífst ekki vel á Íslandi, þá datt okkur í hug að brugga úr ein­hverju öðru. Eftir smá leit á net­inu fundum við út að það væri heppi­legt að brúka rabar­bara við að fram­leiða freyði­vín, og eftir að hafa hug­leitt þetta í stutta stund fór í raun bolt­inn að rúlla. Við erum báðar þannig að við látum verkin tala og vindum okkur í hlut­ina. Það eru sögur af því að fólk sé að brugga heima með rabar­bara hér á landi, en samt eng­inn að fram­leiða freyði­vín úr honum. Þetta er svo­lítið langt ferli, gerj­un­ar­ferlið er nefni­lega öðru­vísi en með bjór­inn til dæmis,“ segir Hrund.

Hrund er ferða­mála­fræð­ingur að mennt og …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þó að ég drekki nú ekki áfengi sjálfur, þá óska ég þeim velgengni með þetta verkefni. Þetta eru kraftmiklar og skapandi konur, aldrei of mikið af þeim.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár