Dýrasta hangikjötið er ekki endilega það besta

Taðreykt hangi­kjöt frá SS fékk bestu dóma að mati dóm­nefndar sem smakk­aði fimm hangi­kjöts­teg­undir en Íslands­lamb og hangi­kjötið frá Norð­lenska komu næst á eftir í flestum til­fellum. Dýrasta kjötið var ekki valið það besta að mati dóm­nefndar en ódýrasta kjötið fékk yfir­höfuð slök­ustu dómana.

Dýrasta hangikjötið er ekki endilega það besta

Hangi­kjöts­mökkun fór fram í veit­inga­hús­inu Mat­ar­kjall­ar­anum en Valtýr Svanur Ragn­ars­son, yfir­kokkur stað­ar­ins, hafði veg og vanda af smökk­un­inni, sauð hangi­kjötið, bar fal­lega fram. Smakk­aðar voru fimm teg­undir frá mis­mun­andi fram­leið­endum. Boðið var upp á þá drykki sem passa með eins og malt og app­el­sín, vatn og fleira eins og hver og einn vildi. Gefin var ein­kunn fyrir reyk, salt, bragð og svo ein­kunn fyrir hvert kjöt. Loks gáfu allir sína umsögn fyrir hverja hangi­kjöts­teg­und.

Minnsta rýrnun á Krónuhangikjötinu

Krónu­hangi­kjötið rýrn­aði minnst en Húsa­vík­ur­hangi­kjötið mest og fylgdi hangi­kjötið frá KEA fast á eftir. Þau sem dæmdu voru Valtýr Svanur Ragn­ars­son, yfir­kokkur í Mat­ar­kjall­ar­anum; Nanna Rögn­vald­ar­dóttir, rit- og mat­ar­bók­ar­höf­undur og okkar helsti sér­fræð­ingur þegar kemur að mat; Kristján Örn Hansson, mat­reiðslu­maður á SÓL veit­inga­húsi, allt reynslu­mikið og mjög fært fólk á sínu sviði og svo Ragn­heiður Linnet blaða­maður sem leik­maður.

…
Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár