Átröskun á jólunum: „Ég borðaði mandarínu á aðfangadag“

„Þetta er sjúk­dómur sem fer ekki í jóla­frí,“ segir Elín Ósk Arn­ars­dóttir, sem hefur glímt við átröskun í þrettán ár. Hún segir jóla­há­tíð­ina einn erf­ið­asta tíma árs­ins fyrir fólk með sjúk­dóm­inn þar sem matur spilar stórt hlut­verk og úrræðum fækkar fyrir sjúk­linga. Elín er nú á bata­vegi og hvetur fólk til að tala hlut­laust um mat og sleppa því að refsa sér.

<span>Átröskun á jólunum:</span> „Ég borðaði mandarínu á aðfangadag“
Elín Ósk Arn­ars­dóttir Segir að átröskun sé sjúk­dómur sem fari ekki í jóla­frí. Mynd: Golli

„Jólin eru martröð,“ segir Elín Ósk Arn­ars­dóttir um hátíð­ina en hún hefur glímt við átröskun í rúman ára­tug. Sjúk­dóm­ur­inn getur haft alvar­legar lík­am­legar og and­legar afleið­ingar og er dán­ar­tíðni hans sú hæsta á meðal geð­sjúk­dóma í heim­inum. „Ég finn til með þeim sem eru að ganga í gegnum það sem ég hef verið að ganga í gegnum síð­ustu þrettán ár,“ segir Elín. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum glíma sex pró­sent kvenna og tvö pró­sent karla við átröskun hverju sinni. Tíu pró­sent allra kvenna á Íslandi munu glíma við átröskun á ein­hverjum tíma­punkti í lífi sínu.

„Jólin eru martröð“

Elín er nú á góðum bata­vegi og hlakkar í fyrsta skipti í langan tíma til jól­anna. Heim­ildin tók hana tali og spurði hana hvernig það er að glíma við átröskun yfir jóla­há­tíð­irnar, fyrstu jólin í bata og hvernig sam­fé­lagið getur stuðlað að heil­brigð­ara sam­bandi …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár