„Ef við getum opnað fyrir mannúðaraðstoð getum við breytt stefnu sögunnar”

Samuel Rostøl hjúkr­un­ar­fræð­ingur og dýra­vernd­un­ar­sinni er í áhöfn Global Sumud Flotilla á leið til Gaza. Hann segir áhafn­ar­með­limi hafa ákveðið að bregð­ast við hörm­ung­unum á Gaza fyrst að rík­is­stjórnir geri það ekki. „Það er undir okkur komið – mér og þér – að stoppa þetta,“ útskýrir hann.

„Ef við getum opnað fyrir mannúðaraðstoð getum við breytt stefnu sögunnar”
Samuel Rostøl „Frá mínu sjón­ar­horni finnst mér það vera sið­ferð­is­leg skylda að gera eitt­hvað.“ Mynd: Chris Kebbon

„Við erum eins og þú. Bara venju­legar mann­eskjur sem erum að gera það besta sem við getum til að stöðva þjóð­ar­morðið og hung­ursneyð­ina sem er að eiga sér stað á Gaza,“ segir Samuel Rostøl hjúkr­un­ar­fræð­ingur og dýra­vernd­un­ar­sinni. 

Hann er meðal báts­verja í báta­flota Global Sumud Flotilla sem stefnir nú í átt að Gaza. Markmið flot­ans er að stöðva „ólög­legt umsátur Ísraels á Gaza.“ Í báta­flot­anum eru um fimm­hund­ruð áhafn­ar­með­limir frá 41 ríki segir Samuel. 

Samuel er frá Noregi en hefur barist gegn hval­veiðum á Íslandi. Hann tók þátt í mót­mælum árið 2023 þar sem hann fór í hung­ur­verk­fall í 21 dag í kjöl­far þess að leyfi voru gefin út fyrir veiðar á lang­reyðum.

Siglingin siðferðisleg skylda

„Frá mínu sjón­ar­horni finnst mér það vera sið­ferð­is­leg skylda að gera eitt­hvað,“ segir Samuel …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár