Náttúru raskað á vinsælustu ferðamannastöðum landsins

Utan­vega­akstur, marg­fald­aðir göngu­stígar, sígar­ettu­stubbar og dauður mosi eru meðal þess sem mik­ill ferða­manna­straumur hefur haft í för með sér. Heim­ildin skoð­aði ástandið á vin­sælum ferða­manna­stöðum á Suð­ur­landi og ræddi við sér­fræð­inga á svæð­inu.

Náttúru raskað á vinsælustu ferðamannastöðum landsins
Átroðn­ingur við Skóga­foss Ferða­maður gengur fyrir utan merktan stíg en slóðar hafa mynd­ast út frá stígum víða á ferða­manna­stöðum. Mynd: Golli

Ágangur á nátt­úru Suð­ur­lands hefur auk­ist mikið með til­komu auk­ins ferða­manna­straums. Göngu­leiðir eru margar í slæmu ásig­komu­lagi og slóðar hafa mynd­ast út frá þeim, finna má dauðan mosa í hraun­breiðum, hjól­för eru á söndum eftir utan­vega­akstur og rusl ratar ekki alltaf í tunnur. 

Nátt­úru­vernd­ar­stofnun hóf ástands­mat á frið­lýstum svæðum árið 2018 en mörg þeirra eru vin­sælir ferða­manna­staðir. Á vef stofn­un­ar­innar segir: „Margir þættir geta haft nei­kvæð áhrif á vernd­ar­gildi frið­lýstra svæða. Þó má segja að áhrif mann­legra umsvifa séu hvað mest en frið­lýst svæði eru oft vin­sælir áfanga­staðir ferða­manna.“

Fjöldi ferða­manna hefur marg­fald­ast hér á landi og álagið í sam­ræmi við það. Árið 1953 komu hingað til lands sex þús­und gestir, upp úr alda­mótum voru þeir orðnir 320 þús­und og í dag eru þeir tæp­lega 2,3 millj­ónir á ári. Samkvæmt spá Ferða­mála­stofu má ætla að þeim muni fjölga næstu ár og verði orðnir tæpar 2,9 millj­ónir árið 2030. 

…
Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Það vantar Brúará í Bláskogabyggð á kortinu: 2 ( bráðum 3) bílastæði, ekkert klósett, 1 ruslatunna. Engin vöktun.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið undanfarið ár