Sýknaður af nauðgun gegn barnabarni sínu

Karlmaður á áttræðis­aldri var sýknaður í Héraðs­dómi Reykjaness af kynferðis­brotum gegn dóttur­dóttur sinni, en hann var ákærður fyrir að hafa nauðgað henni tvisvar með fjögurra ára millibili. Bæði brotin áttu að hafa átt sér stað meðan dótt­ur­dótt­urin var í pössun hjá afa sínum.

Karlmaður á áttræðis­aldri var í apríl sýknaður í Héraðs­dómi Reykjaness fyrir grófar nauðganir gegn ólögráða barna­barni sínu. Maðurinn var borinn þeim sökum að hafa nauðgað dóttur­dóttur sinni, annars vegar árið 2015 og hins vegar árið 2019, með því að „nýta sér yfirburði sína gagnvart stúlkunni og traust hennar og trúnað til hans sem afa hennar“.

Bæði brotin áttu að hafa átt sér stað meðan dótturdótturin var í pössun þar sem hún gisti hjá ákærða.

Maðurinn var sýknaður en dómurinn taldi framburð brotaþola ekki nægilega skýran og áreiðanlegan, auk þess sem ósamræmi væri í lýsingum hennar um meint brot – bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Að mati dómsins gætti töluverðs óskýr­leika og jafnvel ósamræmis í frásögn stúlkunnar um hvað afi hennar ætti að hafa gert á  hennar hlut.

Aldur stúlkunnar kemur ekki fram í dómnum. Í gögnum málsins kemur þó fram að máls­aðilar séu sammála um að afinn og barna­barnið hafi síðast hist í fermingar­veislu stúlkunnar, og má því áætla út frá því að brotin hafi átt sér stað áður en hún komst á fermingar­aldur.

„Svona bullukolla“

Eiginkona afans bar um það vitni fyrir dómi að hún hefði alltaf verið heima þegar stúlkan gisti hjá þeim hjónum og afinn hafi því aldrei verið einn með dóttur­dótturinni. Við yfirheyslu þvertók afinn fyrir að hafa brotið gegn dótturtóttur sinni og að hann áttaði sig ekki á því af hverju hún bæri slík ósannindi á hann.

Hún ætti það til að vera „svolítið mikil svona bullu­kolla.“ Samband hans við dóttur­dótturina og systkini hennar hafi verið náið og gott þangað til dóttir hans hætti samskiptum við hann um áramótin 2021-2022. Börnin hefðu oft verið í pössun hjá honum og konu hans. 

Að mati dómsins þótti fram­burður afans hnökra­laus og trúverðugur. Þá ætti hann sér stoð í öðrum vitnis­burðum og skjal­festum sönnunar­gögnum. 

Greindist með áfallastreitu

Stúlkan sótti tíu sálfræði­tíma hjá Barnahúsi 2022-2023 þar sem hún greindist með áfalla­streitu­röskun. Í dóminum segir að einkenni hennar hafi einkum birst í endur­upplifun ágengra minninga um meint kynferðis­brot.

Sagði sálfræðingur frá Barnahúsi fyrir dómi að einkenni áfalla­streitu­röskunar hjá stúlkunni hefðu verið „svo sértæk“ fyrir því að hún hefði orðið fyrir kynferðis­ofbeldi að sálfræðingurinn taldi engan vafa leika á að afi stúlkunnar hefði gert eitthvað á hennar hlut. Einkennin gætu ekki stafað af öðru áfalli en kynferðis­brotum ákærða.

Þetta þótti þó ekki styðja sérstak­lega framburð stúlkunnar fyrir dómi, en hún hefði hætt meðferðar­viðtölum áður en til þess kom að rætt yrði um meint kynferðis­brot afa hennar gegn henni. Ályktun sálfræðingsins þótti því óvarleg.

Þrátt fyrir stöðuga frásögn stúlkunnar að afi hennar hefði brotið á heni kynferðis­lega voru tiltekin atriði sem vöktu þá spurningu hvort hún væri „örugglega að lýsa atviki sem hún hafi upplifað af eigin raun,“ að því er segir í dómnum. 

„Eftir standa orð ákærða gegn orðum brotaþola um meint kynferðis­brot. Þykja þau hvort fyrir sig trúverðug og hallar alls ekki á ákærða við slíkt mat.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár