„Ég berst fyrir réttinum til að lifa“

Á upp­vaxt­ar­ár­unum í suð­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna voru ríkar kröfur gerðar til þess hvernig hún ætti að haga sér og sínu lífi. Þegar hún fann loks frelsið til þess að vera hún sjálf blómstr­aði hún, í ham­ingju­sömu hjóna­bandi, heima­vinn­andi hús­móðir, sem naut þess að sinna syni sínum. „Ég gat lifað og verið frjáls. Það var frá­bært á meðan það ent­ist.“

„Ég berst fyrir réttinum til að lifa“

Hún kom hingað til lands með níu ára gömlum syni sínum, heima­vinn­andi hús­móðir frá Minnesota, sem hefur mán­uðum saman und­ir­búið sig fyrir þátt­töku í Masterchef. Sá draumur er nú á enda. Þar sem Banda­ríkin eru á lista yfir örugg upp­runa­ríki þá var umsókn hennar um alþjóð­lega vernd hér á landi synjað. Í Banda­ríkj­unum er hún engu að síður sann­færð um að líf hennar og vel­ferð sé í hættu. Á síð­ustu 100 dögum hefur hatur vaxið hratt gagn­vart konum eins og henni, sam­hliða aðgerðum stjórn­valda.

Alex­andra kom hingað með níu ára gamlan son sinn á flótta undan vax­andi andúð og aðgerðum gegn trans fólki í Banda­ríkj­unum. Hún er búsett í Minnesota, á litlum bláum bletti í rauðu ríki. Í næsta nágrenni við hana bjó trans maður sem hvarf fyrr í vetur. Nú hafa sjö menn verið ákærðir fyrir að frels­is­svipta hann í mánuð, pynta hann og leiða til dauða. Lýs­ing­arnar …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár