Konum fjölgar sem óttast um líf sitt

Úrræða­leysi ríkir hér á landi gagn­vart því að tryggja öryggi kvenna á heim­ilum sínum og stjórn­völd draga lapp­irnar, segir Linda Dröfn Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, sem var á lista BBC yfir 100 áhrifa­mestu konur í heimi. Konum sem leita í athvarfið hefur fjölgað. Oft gera þær lítið úr ofbeld­inu og áfell­ast sig, en lýsa síðan hryll­ingi inni á heim­il­inu. „Sjálfs­á­sök­unin situr oft lengst í þeim.“

Konum fjölgar sem óttast um líf sitt
Skýr skila­boð Sam­fé­lagið þarf að taka afger­andi afstöðu gegn ofbeldi og upp­ræta það. Mynd: Golli

Til okkar koma konur sem hafa misst öll völd og ákvarð­ana­rétt um eigið líf,“ segir Linda Dröfn Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins. „Þessar konur hafa verið ein­angr­aðar frá fjöl­skyldu og vinum, fá jafn­vel ekki að nota tölvu eða keyra bíl eða taka þátt í sam­fé­lag­inu með nokkrum hætti. Í kjöl­farið hafa þær misst sjálfs­traustið og trú á getu sína til standa á eigin fótum. Sama höfum við upp­lifað með börnin, sem hafa oft verið ein­angruð með mæðrum sínum inni á heim­il­inu og ekki fengið að umgang­ast önnur börn.“

Það er ekki auð­velt að stíga út úr ofbeld­is­sam­bandi. „Það getur verið fjár­hags­lega og and­lega flókið. Ofbeldi í nánu sam­bandi getur falið í sér flókin tengsl við ger­anda, sem getur til dæmis verið barns­faðir þol­anda. Að baki er líka oft sam­band þar sem fólk átti sínar góðu stundir og djúpar til­finn­ingar. Þannig að þetta er oft rús­sí­ban­areið. 

Konur koma til okkar mjög …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár