Ráðist á fólk af öðrum uppruna

Sunja Írena Gunn­ars­dóttir var tveggja vikna þegar hún kom til Íslands frá Sri Lanka fyrir 39 árum. Henni finnst Ísland vera að fara aftur í tím­ann þegar kemur að for­dómum. „Ég geng samt með höf­uðið hátt.“

Ráðist á fólk af öðrum uppruna
Elskar að vinna með börnum Sunja Írena Gunn­ars­dóttir starfar með börnum á yngsta stigi í grunn­skóla. Hún elskar að vinna með börnum. „Draum­ur­inn minn er að eign­ast börn og ég hef alltaf elskað börn og hef alltaf verið svo­lítil mamma í mér.“ Mynd: Heimildin

„Ég er að jafna mig eftir aðgerð sem ég fór í. Þetta var bara klaufa­skapur í mér, ég er svo mik­ill hrak­falla­bálkur. Ég missteig mig illa fyrir ári síðan og fót­ur­inn fór í öfuga átt miðað við hvernig maður mis­stígur sig. Ég end­aði með slitið lið­band og bólgna sin sem varð svo ónýt. Ég er með skó­spelku en losna við hana í lok nóv­em­ber.

Ég hef þurft að kúpla mig út og er að reyna að fara ekki fram úr sjálfri mér eins og ég er vön að gera, að vera að flýta mér of mikið. Ég er bara búin að vera í góðu yfir­læti á Stokks­eyri hjá vina­fólki mínu sem passar að ég sé ekki að ofreyna mig. Þau hjálpa mér að sjá um hund­inn. Bata­ferlið er að taka einn dag í einu. Ég er ekk­ert mikið að hugsa um fram­tíð­ina. Ég tek einn dag í einu eins og mér hefur verið kennt í minni sjálfs­vinnu, ekki vera að flýta mér of mikið. Ég er rosa­lega gjörn á að fara fram úr sjálfri mér. 

Ég vinn á frí­stunda­heim­ili á Selfossi með krökkum í 1. og 2. bekk. Ég elska að vinna með börnum. Þetta er rosa­lega gaman, ég er svo mik­ill krakki sjálf. Draum­ur­inn minn er að eign­ast börn og ég hef alltaf elskað börn og hef alltaf verið svo­lítil mamma í mér. 

„Það er svo­lítið mikið verið að ráð­ast á fólk sem er af öðrum upp­runa, sem mér finnst mjög leið­in­legt

Ég er ætt­leidd frá Sri Lanka, ég kom til Íslands tveggja vikna gömul, árið 1985. Frá mínu sjón­ar­horni líður mér svo­lítið eins og Ísland sé að fara til baka í tíma þegar kemur að for­dómum. Það er svo­lítið mikið verið að ráð­ast á fólk sem er af öðrum upp­runa, sem mér finnst mjög leið­in­legt. Ég geng samt með höf­uðið hátt. Ef að það kemur, þá bara kemur það.“

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár