Minn­ing­ar­at­höfn Vinir Geirs klædd­ust bolum sem á stóð „þetta verður allt í lagi“. Mynd: Golli

Minntust Geirs og vilja breytingar á kerfi sem brást honum

Jón Kristján Jacobsen, faðir Geirs Arnar Jacobsen sem lést í bruna á Stuðlum, seg­ist þreyttur á and­vara­leysi stjórn­valda þegar kemur að „týndu börn­unum“. Minn­ing­ar­at­höfn um son hans, sem var sautján ára þegar hann lést, var haldin í Frí­kirkj­unni í gær.

Vinir og fjöl­skylda Geirs Arnar Jacobsen, sem lést í bruna á með­ferð­ar­heim­il­inu Stuðlum 19. októ­ber síð­ast­lið­inn, komu saman í Frí­kirkj­unni í gær og minnt­ust hans. Hópurinn gekk að tröppum Alþing­is­húss­ins með rósir til minn­ingar um þau sem lát­ist hafa af völdum fíkni­sjúk­dóms.

Faðir Geirs Arnar hefur litla trú á þessu Alþingi og finnst að for­gangs­röðun stjórn­valda, sem leggi ekki nægi­lega áherslu á grunn­stoð­irnar, sé röng.

„Ég fer ekki og kýs af því að ég er búinn að vera í þessum mála­flokki sjálfur, ég segi bara að ég sé ekki mun á kúk og skít,“ segir fað­ir­inn, Jón Kristján Jacobsen, sem er betur þekktur sem Nonni Lobo.

„Ég veit hvernig póli­tíkin virkar, þetta er kaup kaups, ef einn flokkur sam­þykkir þetta þá sam­þykkir hinn hitt en þetta eru bara plástrar.“

Þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit finnst Jóni ekki að breyt­ingar til batn­aðar hafi orðið á stöðu barna með fíkni­vanda.

„Ég er búinn að horfa á það – í fíkni­mál­unum, það var gert álit og eitt­hvað og síðan gerð­ist ekk­ert í þeim málum. Það voru enda­lausar nefndir sem sátu á launum við að finna út úr þessu, skila inn áliti og þetta átti að vera nýja stefnan en það breytt­ist ekk­ert. Það er enda­laust verið að eyða pen­ingum og borga fólki fyrir að sitja í nefndum sem mætir tak­markað og hefur tak­mark­aða þekk­ingu á nefnd­ar­starf­inu,“ segir Jón. 

Úrræða­leysi, kallar hann stöð­una fyrir börn og ung­menni með fíkni­vanda í dag. Þegar hann er spurður hvort kerfið hafi brugð­ist syni hans segir Jón: „Allan dag­inn.“

Tveimur dögum áður en Geir Örn lést mættu þeir feðgar í við­tal hjá Vísi þar sem Geir Örn lýsti Stuðlum sem geymslu. 

„Þetta er bara geymsla. Við sitjum þarna og bíðum og fáum Playstation-tölvur. Og ein­hvern tím­ann fáum við að fara heim,“ sagði Geir Örn þá.

Vantar einhvern sem talar við krakkana sem jafningja

Jón, sem hefur ára­tuga­langa reynslu af því að vinna með fólki með fíkni­vanda og hefur reynslu af fang­els­is­dvöl og alkó­hól­isma sjálfur, kallar eftir því að stjórn­völd vakni, þau hafi sofnað á verð­inum. 

„Ég er búinn að vinna með fullt af börnum sem voru á Stuðlum, þetta er bara þessi hópur – týndu börnin. Maður verður þreyttur á þessu and­vara­leysi stjórn­valda og þeirra sem ráða ein­hverju,“ segir Jón. 

Sjálfur ætlar hann ekki að láta sitt eftir liggja. 

„Ef stjórn­völd ætla ekki að gera það ætlum við að reyna að gera eitt­hvað, vera til staðar,“ segir Jón. „Ég er ekki hættur. Áður en þetta gerð­ist vorum við búin að fá sal í 12 spora hús­inu. Við erum að spá í ein­hvern svona hitt­ing fyrir þessa krakka, 13 til 18 ára, því það er bara ekki til.“ 

Jón, sem hefur sjálfur góða reynslu af því að vera í sveit sem ungur maður, á hug­mynd um enn stærra verk­efni.

„Ég er alveg búinn að vera með þennan draum, af því að ég er í hestum og mót­or­hjólum og öllu þessu dóti – að vera með eitt­hvað úti á landi fyrir stráka­geml­inga sem þurfa að fá nánd við dýrin, hesta, mót­or­hjól og þetta,“ segir Jón. „Það vantar svona, ein­hvern sem mætir þessum krökkum á jafn­ingja­grund­velli og talar við þá á jafn­ingja­grund­velli.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár