Er gjá milli þings og þjóðar?

Íslenska þjóðin hefur að miklum meiri­hluta samúð með mál­stað Palest­ínu og margir vilja sjá stjórn­völd beita ísra­elsk stjórn­völd við­ur­lögum. Hvað segja þing­menn? Heim­ildin fal­að­ist eftir svörum frá þeim varð­andi við­skipta­þving­anir og stjórn­mála­sam­band Íslands við Ísrael.

Er gjá milli þings og þjóðar?
Alþingi Heilt ár er nú liðið frá því að sprengjum byrj­aði að rigna yfir Gaza. Á þingi er nú komin fram til­laga um að rík­is­stjórnin beiti sér fyrir alþjóð­legum þving­un­ar­að­gerðum gegn Ísrael. Mynd: Golli

Meiri­hluti íslensks almenn­ings vill að Ísland beiti við­skipta­þving­unum gagn­vart Ísrael og meiri­hluti lands­manna kveðst einnig vilja að Ísland slíti stjórn­mála­sam­bandi sínu við Ísrael. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem Maskína gerði fyrir sam­tökin Ísland-Palest­ína.

Þar að auki sögð­ust 72,5 pró­sent svar­enda hafa meiri samúð með mál­stað Palest­ínu en Ísraels, 18 pró­sent sögð­ust hafa jafn­mikla samúð með báðum og 9,5 pró­sent kváð­ust hafa meiri samúð með mál­stað Ísraels. Nið­ur­staða þess­arar könn­unar er ef til vill áminn­ing um það að stærstur hluti íslensku þjóð­ar­innar hefur löngum haldið mál­stað Palest­ínu á lofti. Árið 2011 varð Ísland á meðal fyrstu þjóða á Vest­ur­löndum til að við­ur­kenna Palest­ínu sem sjálf­stætt ríki. 

„Það er mik­il­vægt að hafa opinn streng til þess að geta aðstoðað“
Jódís Skúla­dóttir
þing­maður VG

þing­maður VGEn hvernig er staðan í þing­inu? Hug­myndir um slit á stjórn­mála­sam­bandi eða við­skipta­þving­anir gagn­vart Ísrael hafa ekki verið ræddar mikið á vett­vangi stjórn­mál­anna und­an­farið ár, …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GHØ
    Gunnhild Hatlemark Øyahals, skrifaði
    Ótrúlega kjarklausir þingmenn og sorglegt að sjá hverjar réttlætingarnar eru fyrir að aðhafast ekkert. Stjórnmálasamband hvað? Þykjast Íslenskir stjórnmálamenn hafa eitthvert samband við Ísraela þegar þeir hafa hreðjartak á voldugum þjóðum eins og USA myndu þeir hrista Ísland af sér eins og flugu? Eina sem myndi hafa áhrif er yfirlýst fordæming á aðgerðum Ísraela og slit á stjórnmálasambandi. það myndi vekja athygli og kannski efla einhverja aðrar hræddar þjóðir til að taka afstöðu. Kjarkur er allt sem þarf!
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórnmálunum“
ÚttektÞau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórn­mál­unum“

Bæj­ar­stjór­inn Gunnar Axel Axelsson, sem var sjálf­boða­liði á Vest­ur­bakk­anum fyrir nokkrum árum, seg­ist telja að stjórn­mála­menn þori ekki að segja hug sinn allan um mál­efni Palest­ínu af ótta við ásak­anir um gyð­inga­hatur. Alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Magnea Mar­in­ós­dóttir hefur verið kölluð tals­kona Hamas, þegar hún ræðir um ára­tuga­langan aðdrag­and­ann að 7. októ­ber 2023 í fjöl­miðlum. Það kæfi umræð­una.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár