Undrafæðan rauðrófa

Rauðrófa er rót­ar­græn­meti og sitt sýn­ist hverjum um bragð­gæði hennar en und­an­farið hafa vin­sældir hennar auk­ist. Hún sést til að mynda á mat­seðli veit­inga­húsa, á sal­at­börum og í rauðrófusafa en rauðrófan býr yfir efnum sem vís­inda­lega hefur verið sýnt fram á að hafi góð áhrif á lík­am­lega heilsu, einkum hjarta­heilsu og þrek íþrótta­fólks.

Undrafæðan rauðrófa

Rauðrófa (beta vulgaris) eða rauð­beða eins og hún er líka kölluð, er tvíær, ber ávöxt fyrra árið en fræ það seinna, er rót­ar­græn­meti og er skyld syk­ur­rófu. Afbrigði rauðróf­unnar óx villt fyrr á öldum með­fram ströndum víða í Evrópu og var notað sem lækn­inga­jurt og skyldi engan undra. Raurófa er afar rík af vítamínum, nítrötum og trefjum og hafa vís­inda­rann­sóknir gefið til kynna að hún hafi heilsu­efl­andi áhrif. Virku efnin í rauðrófu sem einkum er sóst eftir eru nítröt og betalaín og er hægt að fá þau í ríku­legu magni í rauðrófusafa eða í hylkjum eða töflum sem inni­halda rauðrófu­duft.

Það voru rann­sóknir á fæði fólks á Mið­jarð­ar­hafs­svæð­inu sem leiddi vís­inda­menn að rauðróf­unni og heilsu­bæt­andi eig­in­leikum hennar. Tíðni dauðs­falla af völdum hjarta- og æða­sjúk­dóma á þessu svæði var ekki jafnhá og ann­ars staðar í Evrópu. Fæði þessa fólks ein­kennd­ist af græn­meti og ávöxtum sem leiddi til vax­andi áhuga vís­inda­manna …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SE
    Steinunn Eldflaug skrifaði
    Ekki má gleyma Borch, Úkraínskri súpu sem er gerð úr rauðrófum, hún er mjög holl og góð! mæli með að googla uppskriftir og prufa ;) Ath! hún á helst að vera svo þykk að sleifin standi beint uppí loftið ef hún er sett í pottinn
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár