„Ég er stoltur af öllum sköttum sem ég borga“

Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­andi og for­stjóri Kerecis, sem var selt á síð­asta ári, borgar hærri skatta en margir sem voru tekju­hærri. Hann segir mik­il­vægt að Ísa­fjörður haldi áfram að dafna.

„Ég er stoltur af öllum sköttum sem ég borga“
Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son For­stjóri Kerecis segir ungt fólk vilja flytja til Ísa­fjarðar vegna atvinnu­tæki­færa og nálægð­ar­innar við nátt­úru.

Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­andi og for­stjóri líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Kerecis, er í 12. sæti hátekju­lista Heim­ild­ar­innar 2023.

Guð­mundur var með tæpar 75 millj­ónir í tekjur á mán­uði og var þar að auki með rúmar 80 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur. Kerecis var í fyrra selt til danska stór­fyr­ir­tæk­is­ins Coloplast á rúm­lega 175 millj­arða króna en Guð­mundur segir að sölu­hagn­aður sinn komi ekki allur fram í töl­unum.

„Ég er stoltur af öllum sköttum sem ég borga og þeim verð­mætum sem Kerecis hefur skapað fyrir starfs­menn, fjár­festa og aðra sem að koma,“ segir hann.

Þrátt fyrir að vera í 12. sæti yfir tekju­hæstu skatt­greið­end­urna er Guð­mundur í 7. sæti yfir hæstu greiddu skatt­ana. Útskýrist það af því að stærstur hluti tekna hans voru launa­tekjur sem eru skatt­lagðar á tölu­vert hærra hlut­falli en fjár­magnstekjur. Raunar eru margir ofar­lega á hátekju­list­anum sem greiða lítið í útsvar til sveit­ar­fé­lags síns vegna þessa. Guð­mundur greiddi hins …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Stórkostlegur maður sem borgar skattana sína, öfugt við marga aðra sem vaða í peningum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár