Fædd inn í fegurð fjalla

Gróa Ingi­mund­ar­dóttir hjúkr­un­ar­kona er fædd inn í feg­urð fjalla vestur á Hval­látrum við Látra­bjarg. Þar átti hún draug­inn Pilla sem skelfdi hana í myrkr­inu. Sá fylgdi ætt­inni en Gróa losn­aði við hann þegar hún flutti til borg­ar­innar.

Fædd inn í fegurð fjalla
Fólkið lifði frá hendi í munn Það voru engir milli­liðir, við lifðum af land­inu, frá hendi til munns, segir Gróa. Afi hennar salt­aði fugl í tunnur eins og venju­legt kjöt. Það var haft sem búbót.

Ég er fædd við fjöllin vestur á Hval­látrum í Látra­bjargi. Þú hleypur ekk­ert þar en ég gekk mikið á fjöll í gamla daga. Ég er fædd inn í feg­urð og egg og fugl. Það var sigið og alltaf egg á vorin en ekki eins mikið af fugli og hjá afa sem salt­aði hann í tunnur eins og venju­legt kjöt. Það var haft sem búbót. Fólkið lifði svona. Lifði frá hendi í munn. Það átti heldur ekk­ert meira. Ég var í far­skóla en við krakk­arnir lærðum jarð­fræði og dýra­fræði með því að lifa á þessum slóðum. Sá lær­dómur kom ekki úr bókum. 

Ég átti draug fyrir vestan. Hann Pilla. Sá hafði fylgt afa mínum sem var fæddur 1843 og þó að afi hafi átt Pilla hélt draug­ur­inn áfram að fylgja ætt­inni eftir að afi dó. Ég var dauð­hrædd við Pilla, við vorum það öll börnin og líka sumt full­orðið fólk. Við …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár