Til í allt nema trúlofun

Lilja Valdimars­dóttir, horn­leikari á eftir­launum, eignaðist sitt fyrsta barn 19 ára gömul, vann á togara fyrir fyrsta hljóð­færinu og segist vera til í allt nema trúlofun.

Nöfnurnar
Nöfn­urnar Lilja með nöfnu sinni og barna­barni, sem spilar á hljóð­færi eins og amma sín.

Ég fór í tónlistar­skólann og var svo í fjögur ár í Stokk­hólmi að blása hornið mitt. Er búin að vera í Sinfóníunni. Ég er komin á eftirlaun þar. Ég hef alltaf unnið. Ég fór á sjóinn á togara tvö sumur til að vinna fyrir fyrsta hljóð­færinu mínu. Þá var ég í mánuð í einu, svo fórum við og seldum í Hamborg og Húll og svoleiðis. Ég var kokkurinn. Ég fékk einn og kvart en hinir venjulegu mennirnir bara einn hlut.

Ég var með í láni hornið frá tónlistar­skólanum. Skip­stjórinn sagði:„Hún er skrítin, þessi kona. Það gæti komið sér vel að hafa hana um borð í skipinu ef við lendum í þoku.“ Af því að þá var ég með lúðurinn til að blása. Þokulúður. Svo kom ég heim og var að spila hérna.

Ég segi alltaf þegar ég er spurð. Ég er til í allt nema trúlofun. Ég hef …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár