Skugginn af frelsi Julians er glæpavæðing blaðamennsku
Frjáls og kom­inn heim Julian Assange er frjáls ferða sinna í fyrsta skipti í 14 ár. Hann kom heim til Ástralíu á fimmtu­dags­morgun. Und­an­farin fimm ár hefur hann dvalið í nær sam­felldri ein­angrun í litlum fanga­klefa í hinu alræmda Belmarsh fang­elsi í Lundúnum, sak­laus að berj­ast gegn fram­sali til Banda­ríkj­anna. Mynd: AFP

Skugginn af frelsi Julians er glæpavæðing blaðamennsku

Sátt banda­rískra stjórn­valda við Julian Assange felur í sér að þau telji hann hafa brotið lög með blaða­mennsku en ekki njósnum eða tölvu­glæpum.. Þetta segir Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, sem leyfir sér nú að fagna frelsun Julians. Mála­lokin feli hins vegar í sér sögu­lega en óhugn­an­lega nið­ur­stöðu fyrir blaða­menn um allan heim.

„Það var ekki fyrr en eldsnemma í morgun að við fengum meld­ingu um að hann væri búinn að klára fyrir þessum dómi og á leið út úr banda­rískri loft­helgi, að maður loks­ins leyfði sér að draga djúpt and­ann og átta sig á því að þetta væri í höfn,“ sagði Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks og sam­starfs­maður Julians Assange til næstum tveggja ára­tuga, í sam­tali við Heim­ild­ina í hádeg­inu á mið­viku­dag.

Það kom eins og þruma úr heið­skíru loft þegar á þriðju­dag­morgun birt­ust fréttir af því að Julian Assange yrði brátt frjáls maður. Hann gengi út úr Belmarsh-fang­els­inu, upp í flug­vél og á banda­rískt áhrifa­svæði þar sem hann fór fyrir dóm­ara, sem stað­festi sam­komu­lag sem náðst hafði milli Julians og banda­rískra yfir­valda. Julian fengi frelsi, en und­ir­rit­aði í stað­inn játn­ingu, en slyppi við refs­ingu umfram þá sem hann hefur þegar tekið út.

Eftir margra ára bar­áttu fyrir lausn Julians, þref …

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Ég vil þakka þér Kristinn fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt framlag öll þessi ár fyrir okkur og heimsbyggðina alla.
    Til hamingju Julian Assange með frelsið!
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár