Missti heimilið í stórbruna: „Shit happens“

Sigurður Þór Sig­urðs­son, eig­andi geisla­diska- og spólu­versl­un­ar­innar 2001 ehf. á Hverf­is­götu, missti heim­ilið sitt í stór­bruna fyrir nokkrum ára­tugum. Versl­unin hans í sömu götu veitir honum festu.

Missti heimilið í stórbruna: „Shit happens“
VHS, DVD og Bluray Sigurður Þór Sig­urðs­son hefur rekið geisla­diska- og spólu­versl­un­ina 2001 ehf. í rúm­lega 30 ár. Mynd: Georg Gylfason/Heimildin

„Það er ýmis­legt sem hefur gerst í gegnum lífið. Ég hef nú lent í stór­bruna og misst heim­ilið mitt og lent í ýmsu. Það var á Hverf­is­götu 55 þegar það brann á sínum tíma, alla­vega orðin næstum því 30 ár síðan. Ég hef verið svona í kringum fer­tugt.

Það kvikn­aði í um nótt. Ég bjó þarna í einni íbúð­inni, for­eldrar mínir voru á efstu hæð­inni og svo var fólk sem bjó ann­ars staðar þar sem kvikn­aði í. En eins og ég segi bara: „Shit happ­ens“. Þetta var óreglu­fólk sem hafði flutt inn í þessa íbúð sem var á leigu. Það end­aði ekki vel.“

For­eldrar mínir stukku út en fluttu síðan til systur minnar og voru þar í smá tíma þangað til að það var byggt upp aftur. Ég var líka hjá systur minni. Ég er kannski ekki eld­hræddur í dag, ekk­ert frekar en annað. Elds­voðar eiga sér ástæðu, kannski er ég meira nágranna­hræddur heldur en hitt sko, það kemur ekk­ert eld­inum við.

„Það var nýja­brum á þessu þá.“

Ég á þessa verslun, 2001 ehf., opn­aði hana ´93. Þegar við byrj­uðum var þetta allt þá var VHS og lazerdiskar, CD-inn var rétt að byrja. Það var nýja­brum á þessu þá. Það kemur alltaf eitt­hvað nýtt. Það var VHS fyrst, síðan kom DVD-ið og svo hefur komið Bluray og núna 4K. En í raun­inni er þetta allt að selj­ast. Meira að segja vín­yll­inn er kom­inn aftur, sem ein­hvern tím­ann þótti bara fyndið að tala um. 

Við verðum aðeins að skoða tækn­ina á bak­við þetta. VHS-ið er auð­vitað þannig að tækin eru frekar flókin. Það eru pinch-rúllur og ýmis­legt í þessu sem gefur upp önd­ina með tím­anum. Það er oft sem menn lenda í því að tækin virka ekki lengur. Aftur á móti með CD, Bluray og DVD þá er minni hreyfi­mögu­leiki, jú mót­or­inn getur gefið sig en það er ennþá verið að fram­leiða þetta. Það er minna umstang, við­haldið sko. Þetta er spurn­ing um tækn­ina líka, ekki bara að hlusta á eitt­hvað eða að horfa á.“ 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár