Margrét Bjarna­dóttir og flautuleik­ar­arnir Berglind María Tóms­dóttir og Þuríður Jóns­dóttir. Mynd: Golli

Hvernig hreyfir tónlist sig?

Árið 2016 kom hópur flautuleik­ara saman þegar Björk var að gera plöt­una Utopia og varð flautusept­ett­inn viibra árið 2018. Í fimm ár ferð­að­ist viibra með Björk um heim­inn. Sjö flautuleik­arar eru í viibra og síð­ast­lið­inn sunnu­dag héldu þær tón­leika í Hörpu í til­efni útgáfu fyrstu plötu þeirra: viibra. Dans­höf­und­ur­inn Margrét Bjarna­dóttir vinnur með ólík form og miðla en hefur starfað með viibra að sviðs­hreyf­ingum síðan í Utopiu. Hún svið­setur tón­leik­ana.

Nú er viibra búin að vera til lengi því frá árinu 2018 höfum við verið að túra með Björk og þar áður vorum við að vinna með henni á plöt­unni Utopia. Túruðum með henni og fyrst var túr­inn kenndur við plöt­una Utopia en síðan Cornucopia ...“ segir Berglind María, ein af flautuleik­ur­unum í vii­bru.

Tón­leika­sýn­ingin Cornucopia, sprottin upp úr plöt­unni Utopia, var frum­sýnd í menn­ing­ar­mið­stöð á Man­hattan og leik­stýrt af argent­ínska kvik­mynda­leik­stjór­anum Lucrecia Martel. Fjöl­margir komu að sýn­ing­unni; þar á meðal Hamra­hlíð­ar­kór­inn og þó nokkrir hljóð­færa­leik­arar.

Sam­starfið með Björk má rekja til 2016 þegar þær hitt­ust reglu­lega. Þá var þetta stærri hópur en þær spil­uðu inn á plöt­una Utopia sem kom út haustið 2017. Í kjöl­farið fylgdu allir tón­leik­arnir.

„Við hitt­umst alltaf á föstu­dögum í sum­ar­bú­stað Bjarkar vet­ur­inn 2016–2017,“ minn­ist Þuríður, annar flautuleik­ari vii­bru. En Margrét hóf sam­starfið með vii­bru og Björk …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár