Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dóttir, eig­in­kona Precious Felix Tanimola sem var sendur úr landi til Nígeríu í nótt, seg­ist ekki hafa fengið að kveðja hann: „Síminn var tek­inn af honum og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Íslands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Honum hafði ári áður verið boðið að spila þar fót­bolta með úkra­ínsku félags­liði.

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn

P

recious Felix sem er nýorð­inn tví­tugur var hand­tek­inn á lög­reglu­stöð­inni við Hlemm í gær þegar hann kom þangað til að skrá sig inn; láta vita af sér. Lögregla hafði sagt honum fyrir hálfum mán­uði að hann ætti að gera það þrisvar í viku. Þegar hann kom á lög­reglu­stöð­ina í gær var hann hand­tek­inn og honum til­kynnt að hann yrði sendur úr landi um kvöldið. Hann og níger­ísku flótta­kon­urnar þrjár, þær Blessing, Esther og Mary, eru sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar komin til Lagos í Nígeríu. Vélin sem þau voru í lentu þar í hádeg­inu í dag að íslenskum tíma.   

„Ég er að reyna að fá ein­hver svör hér“
Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dóttir
var á skrif­stofu Útlend­inga­stofn­unar þegar Heim­ildin náði tali af henni í dag

Precious sem er fæddur og upp­alin í Nígeríu hafði sótt um hæli á Íslandi en var synjað um það í byrjun árs. Í febr­úar gift­ist hann Söru Sig­ur­björgu Guð­munds­dóttur sem er tutt­ugu og tveggja ára en þau höfðu þá verið kærustupar í tæp tvö ár.  Heim­ildin hefur fengið að sjá hjú­skap­ar­vott­orðið og náði tali af Söru þar sem hún var stödd á skrif­stofu Útlend­inga­stofn­unar í dag. „Ég er að reyna að fá ein­hver svör hér,“ sagði Sara.

Var í ræktinni þegar eiginmaðurinn var handtekinn

Hún segir að þau hafi farið með hjú­skap­ar­vott­orðið til Útlend­inga­stofn­unar í febr­úar en að á fund­inum í dag hafi starfs­maður stofn­un­ar­innar sagt að í gær hafi verið fram­fylgt ákvörðun um að synja eig­in­manni hennar um hæli, ákvörðun sem hafi verið tekin áður en þau giftu sig. Sara segir að þau hafi, þegar hann var hand­tek­inn, verið að bíða eftir svörum frá stofn­un­inni hvað varð­aði hjú­skap­ar­vott­orðið. Hún hafi fengið þær upp­lýs­ingar áðan að svör við því myndu ber­ast í sumar. 

„Við giftum okkur af því að við elskum hvort annað“
Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dóttir

En Precious er far­inn og Sara nær ekki í hann. „Ég var í rækt­inni í gær í hádeg­inu og þá hringdi hann í mig í gegnum Facetime og náði bara að segja að hann hefði verið hand­tek­inn og yrði sendur til Nígeríu. Hann bað mig að hafa sam­band við lög­fræð­ing. Sagði að það væri verið að fara að taka af honum sím­ann. Svo var sím­inn tek­inn af honum og ég fékk ekki að segja bless við hann. Löggan vildi ekk­ert segja mér í gær.“  

Sara seg­ist hafa flýtt sér á lög­reglu­stöð­ina eftir að hafa heyrt í Precious. Hún vildi freista þess að fá að hitta hann til að geta kvatt hann  almenni­lega. „Maðurinn sem sat í afgreiðsl­unni á lög­reglu­stöð­inni sagði bara nei.“  

„Held ég sé í áfalli“ 

Sara seg­ist ekki skilja af hverju þetta gerð­ist allt svona hratt. „Ég held ég sé í áfalli. Ég á erfitt með að hugsa skýrt,“ segir hún. 

Hún seg­ist strax hafa hringt í lög­manns­stof­una Norðdahl, Narfi og Silva og beðið þau um að aðstoða mann­inn sinn. Samkvæmt upp­lýs­ingum þaðan hóf starfs­fólk þar strax að reyna að fá leyfi til að Sara gæti kvatt eig­in­mann sinn. Það hafi verið mikið gengið á eftir lög­reglu. Án árang­urs.   

Sara og Precious bjuggu saman í Hafn­ar­firði. Þau voru búin að vera kærustupar í tæp tvö ár  þegar þau giftu sig í febr­úar síð­ast­liðnum. „Við giftum okkur af því að við elskum hvort annað. Kannski hefðum við beðið lengur með að gifta okkur af því að við erum enn svo ung en við vildum vera saman og ákváðum að gera það strax svo hann fengi að vera hjá mér.“   

Sara segir að Precious hafi komið til Íslands frá Úkraínu í mars árið 2022.  

„Hann var að spila fót­bolta þar og var hræddur af því að það var stríð. Þannig að hann flúði þaðan til Íslands.“  

Precious á æfingu í ÚkraínuHann æfði um tíma með lið­inu Vikt­or­iya Sumy sem er í annarri deild.

Precious var ekki með úkra­ínskt rík­is­fang og því ekki með sömu stöðu og flest þau sem flúðu þaðan hingað til lands.  

Átti að mæta í vinnu í morgun

Precious var lag­er­starfs­maður hjá Jysk í Reykja­vík. Í ráðn­inga­samn­ingi kemur fram að hann hafi byrjað að vinna þar í októ­ber í fyrra og að ráðn­ingin sé ótíma­bundin. Sara segir að hann hafi verið ánægður í vinn­unni og liðið vel þar. „Hann átti að mæta í vinn­una í morgun. Þetta er allt svo skrýtið.“  

,,Ég veit ekki hvort hann er í varð­haldi þar eða..., ég bara veit ekk­ert”
Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dóttir

Hún seg­ist eiga erfitt með að skilja allt sem kom fram á fund­inum með útlend­inga­stofnun í dag. „Þetta er ótrú­lega flókið. Þau sögðu að hann hefði fengið neitun áður en við giftum okkur og þess vegna væri búið að senda hann úr landi. Við fengum enga við­vörun. Hann var bara hand­tek­inn. Útlend­inga­stofnun veit samt að við erum gift en af því að gögnin um það komu inn eftir að hann fékk synjun segja þau að það hafi ekki verið hægt að breyta því. Það mál verði skoðað og við fáum svör í sumar. En á meðan er hann í Nígeríu. Ég skil þetta ekki.“ 

Sara bíður nú eftir að heyra í Precious sem er kom­inn til Lagos í Nígeríu. ,,Ég veit samt ekk­ert hvert var farið með hann þar. Ég veit ekki hvort hann er í varð­haldi þar eða, … Ég bara veit ekk­ert”.

Leið­rétt­ing:
Precious kom til Íslands í mars árið 2022 en ekki í des­em­ber 2021 eins og greint var frá í frétt­inni í fyrstu. Sara eig­in­kona hans fann í kvöld flug­miða Precious frá því hann flúði frá Úkraínu og sendi Heim­ild­inni mynd af honum. Þar má sjá að Precious flaug frá Varsjá í Póllandi til Íslands 3. mars árið 2022. Fréttin hefur því verið upp­færð.

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Munið hvernig Sjálfstæðisflokkurinn vinnur ?
    Það er svona !
    2
  • Þór Saari skrifaði
    Fasískt stjórnarfar hér á landi er staðreynd. Úff!
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár