Þingið samþykkir tillögu um skipun rannsóknarnefndar um Súðavíkurflóðið

Alþingi sam­þykkti rétt í þessu að skipa rann­sókn­ar­nefnd vegna snjó­flóðs­ins sem féll á Súðavík í jan­úar 1995. Fjöl­mörgum spurn­ingum er ósvarað um það hvernig yfir­völd brugð­ust við í aðdrag­anda og eft­ir­leik flóð­anna. Fjórtán lét­ust í flóð­inu þar af átta börn. Aðstand­endur hinna látnu hafa farið fram á slíka rann­sókn síðan flóðið varð. Nýjar upp­lýs­ingar í mál­inu komu fram í rann­sókn Heim­ild­ar­innar fyrir ári.

Þingið samþykkir tillögu um skipun rannsóknarnefndar um Súðavíkurflóðið
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir , þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sagði í ræðu að þetta væri í fyrsta sinn síðan lög um rann­sókna­nefndir voru settar að Alþingi greiði atkvæði um rann­sókn­ar­nefnd sem fjallar ekki um eft­ir­mála hruns­ins.

Alþingi greiddi fyrir skömmu atkvæði um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis um rann­sókn vegna snjó­flóðs­ins sem féll í Súðavík árið 1995 fór fram í dag.  

Tillagan var sam­þykkt með öllum greiddum atkvæðum. Þingmenn stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu lýstu í ræðum sínum sjald­gæfri sátt sem náðst hefði um málið. En hörm­uðu um leið þann langa tíma sem tekið hefur að koma mál­inu í þennan far­veg.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, tók fyrst til máls og gerði grein fyrir atkvæði sínu. Sagðist hún fagna því að málið hafi náð að rata til atkvæða­greiðslu. Þá vakti hún sér­staka athygli á þeirri góðu sátt sem tek­ist hafi við myndun rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, sér í lagi þeirri nið­ur­stöðu að skipa þrjá nefnd­ar­menn. 

„Það var ekki sjálf­gefið en það er ótrú­lega mik­il­vægt til þess að við­eig­andi sér­fræði­þekk­ing geti verið í nefnd­inni,“ sagði Þór­hildur Sunna. 

Þá vakti Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, athygli á því að þetta mun …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Súðavíkurflóðið

Almannavarnir rannsaka sjálfar sig eftir að rannsóknarnefnd var aflögð
Fréttir

Almanna­varnir rann­saka sjálfar sig eftir að rann­sókn­ar­nefnd var aflögð

Þrátt fyrir ítrekað almanna­varnar­á­stand á und­an­förnum árum og for­dæma­lausar íþyngj­andi aðgerðir í tengslum við þær, lögðu stjórn­völd niður nefnd sem ætlað var að rann­saka hvernig yfir­völd almanna­varna færu að í slíku ástandi. Dóms­mála­ráð­herra færði eft­ir­litið yfir til almanna­varna sjálfra eftir að hafa rök­stutt það að leggja af nefnd­ina, með þeim rökum að hans eigin ráðu­neytið hefði aldrei gert henni kleift að sinna skyldum sínum.
Katrín bendir þinginu á að rannsaka aðdraganda og eftirmál Súðarvíkurflóðanna
FréttirSúðavíkurflóðið

Katrín bendir þing­inu á að rann­saka aðdrag­anda og eft­ir­mál Súð­ar­vík­ur­flóð­anna

Í bréfi sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendi Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur, for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, seg­ist hún telja að rann­sókn­ar­nefnd á vegum Alþingis væri til þess fallin að skapa traust um nið­ur­stöður rann­sóknar á aðdrag­anda og eft­ir­málum snjó­flóð­anna í Súðavík 1995. Flóðin hafi verið reið­ar­slag fyrir íslenskt sam­fé­lag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár