„Það er enginn dómari í eigin sök“

Magnús Davíð Norðdahl, odd­viti Pírata í norð­vest­ur­kjör­dæmi í þing­kosn­ing­unum 2021, segir nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu um eft­ir­mál kosn­ing­anna ánægju­lega en á sama tíma kvíð­væn­lega. Dómurinn er áfell­is­dómur yfir íslenskum stjórn­völdum sem nú þurfa að grípa til úrbóta. Til þess þurfi stjórn­ar­skrár­breyt­ingu.

„Það er enginn dómari í eigin sök“
Oddviti Pírata Magnús Davíð Norðdahl var odd­viti Pírata í noðr­vest­ur­kjör­dæmi í alþing­is­kosn­ing­unum haustið 2021. Mynd: Heida Helgadottir

„Það er að sjálf­sögðu ánægju­legt og gleði­legt að dóm­stóll­inn taki undir sjón­ar­mið okkar og núna, bráðum þremur árum síðar, vinnum við þetta mál. Á sama tíma er það líka kvíð­væn­legt að það þurfi að ráð­ast í ákveðnar umbætur hvað varðar okkar lýð­ræð­is­lega fyr­ir­komu­lag,“ segir Magnús Davíð Norðdahl, odd­viti Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í alþing­is­kosn­ing­unum 2021. 

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu (MDE) komst í morgun að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hafi brotið gegn mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu í Alþing­is­kosn­ing­unum 2021, í kjöl­far end­ur­taln­ingar atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Það var sam­hljóma álit Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins að ríkið hafi brotið á rétti til frjálsra kosn­inga og rétti til skil­virks úrræðis.

Magnús kærði kosn­ing­arn­ar í kjör­dæm­inu til kjör­bréfa­nefnd­ar Al­þing­is og fór fram á svo­kall­aða upp­kosn­ingu sem fel­ur í sér að kos­ið yrði að nýju í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann, ásamt Guðmundi Gunn­ars­syni, fram­bjóð­anda Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, fóru síðar með málið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í nóv­em­ber 2021, eftir að seinni taln­ing atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi var látin standa. 

Með nið­ur­stöðu MDE er mál­inu er lokið fyrir dómi af mati Magnúsar. „Þessi nið­ur­staða felur í sér að íslenska ríkið gerð­ist brot­legt við ákvæði mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Þetta felur ekki í sér að kosn­ing­arnar séu ógildar, þetta er áfell­is­dómur yfir íslenskum stjórn­völdum. Nú þarf að grípa til úrbóta til þess að tryggja að þetta ger­ist ekki aftur.“

Úrbætur felast í stjórnarskrárbreytingum 

Magnús vonar að núver­andi stjórn­ar­meiri­hluti bregð­ist við með við­eig­andi ráð­stöf­unum til að tryggja að atburða­rásin end­ur­taki sig ekki. Hann segir heil­indi kerf­is­ins í heild sinni undir. „Það er lög­gjaf­ar­valdið sem velur fram­kvæmda­valdið, fram­kvæmda­valdið hefur aðkomu að því að velja dóms­valdið. Allt kerfið er undir þegar við erum að tala um kosn­ingar. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu kemst að því að það hefur verið brotið gegn rétt­inum til frjálsra kosn­inga. Það er rosa­lega stórt, það er ekki hægt að segja annað.“

Úrbæt­urnar fela meðal ann­ars í sér breyt­ingar á stjórn­ar­skrá að mati Magnúsar. „Nú er það í höndum stjórn­valda að bregð­ast við og tryggja að svona atvik ger­ist ekki aftur. Eitt af því sem þarf að gera í því sam­hengi er að breyta stjórn­ar­skrá, svo það eru ekki þeir sem vinni kosn­ingar hverju sinni sem kveði upp hvort kosn­ingar hafi farið lög­lega fram. Það er eng­inn dóm­ari í eigin sök. Það er það sem mér hefur alltaf svið­ist sár­ast í þessu.“

Magnús segir það einnig skipta máli að nið­ur­staða hafi feng­ist áður en gengið er til þing­kosn­inga að nýju, sem verður í síð­asta lagið haustið 2025. „Ég held að það hljóti að vera. Auðvitað er fínt að kjós­endur séu með­vit­aðir um þetta mál og það ger­ist að nýju áður en við kjósum til Alþingis.“

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞA
    Þórður Arason skrifaði
    Það er furðulegt ákvæði í stjórnarskránni að "nýkjörnir þingmenn" ákveði hvort kostningarnar hafi verið löglegar. Lág sektargreiðsla vekur athygli, 2 m. kr á mann, í samanburði við að þeir misstu af þingfararkaupi, um 70 m. kr á kjörtímabilinu.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Lýðræði má aldrei verða geðþótti ríkkjandi stjórnvalds, sem það er því miður allt of oft. Ps. Hvað hefði til dæmis kstað að kaupa ríkisstjórnina frá stólunum, þessir tveir ,,þingmenn" eru tveggja millu virði pr. haus.
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Þegar lýðræðinu var stolið með samþykkt á alþingi.
    Dómur er fallinn.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár