Greifinn í þing­inu Fylgist með og sér til þess að þjóð­þingið starfi eins vel og því er frekast unnt. . Mynd: Golli

Upp á (þing)pallinn - Greifi á Alþingi

Bassa­leik­ari hinnar goð­sagnak­endu sveitar Greif­anna, er einn af þing­vörðum Alþingis. Jón Ingi Valdi­mars­son hefur gegnt starf­inu í sjö ár og þykir gera það með sóma. Viddi, æsku­vinur hans og Greifi, segir fáa betri drengi til en Jón. Fjörutíu ár eru síðan hljóm­sveitin var stofnuð, kom sá og sigr­aði. Afgang­inn skrifa menn um í sögu­bókum. Hefur ekki áhrif á hæfi Baldurs Þór­halls­sonar, segir stjórn­mála­fræð­ingur.

„Hvernig í ósköp­unum fatt­að­irðu það?“ spyr þing­vörð­ur­inn á leið niður stiga Alþing­húss­ins. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar hafði hallað sér yfir stiga­hand­riðið og hálf­vegis hróp­aði að mann­inum:

„Varst þú ekki í Greif­unum?!“

Sem reynd­ist rétt. 

Í öllum þeim átökum og allri þeirri eft­ir­sókn eftir ráð­herra­stól­unum tólf í þingsalnum; þar sem þing­menn, oft blóð­ugir upp að öxlum og með hnífa­settin í bökum sam­flokks­manna sinna, svífast einskis til að geta kallað sig „ráð­herrra“ - er ein­ungis einn og óum­deildur Greifi í þing­hús­inu.

Ekki nokkur maður svo vitað sé hefur lagt til að hann láti af því emb­ætti, lagt fram á hann van­traust eða gert, eða lagt í að gera, til­raun til að velta honum úr sessi.

Þessi Greifi við Aust­ur­völl, er Jón Ingi Valdi­mars­son, þing­vörður til sjö ára og bassa­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar Greif­anna til ríf­lega fjöru­tíu ára.

Þingkona féll í stafi

Greif­arnir nutu gríð­ar­lega vin­sælda um og eftir miðjan níunda ára­tug síð­ustu aldar - og gera raunar enn.

Til marks um það tjáði ein af yngri þing­konum þjóð­ar­innar blaða­manni það, nán­ast dreymin á svip, að hún hefði orðið „starstruck" (frægð­ar­fangin) þegar hún upp­götv­aði ný kjörin á þing, hvaða goð­sögn gengi um í bún­ingi þingvarðar á nýjum vinnu­stað hennar.

Söfnuðu liði og hefndu

Greif­arnir sækja rætur sínar til Húsa­víkur. Fjórir ungir menn, sem höfðu spilað saman frá því þeir voru pollar, stofn­uðu form­lega hljóm­sveit árið 1984. Sveitin hét í fyrstu Special treat­ment (Sér­með­ferð upp á íslensku). Ári síðar héldu hús­vísku drengirnir suður til Reykja­víkur og freist­uðu gæf­unnar í þá nýstofn­aðri hljóm­sveita­keppni; Mús­íktil­raunum Tóna­bæjar.

Einungis arms­lengd frá gulli end­uðu Sér­með­ferð­ar­menn á að fara norður með silfrið í Mús­íktil­raunum árið 1985.

Sig­ur­veg­arar það árið voru hljóm­sveitin Gypsy, sem í voru meðal ann­ars Hallur Ing­ólfs­son, trommari XIII og Ham, auk Ingólfs Geirdal, töfra­manns og gít­ar­hetju í Dimmu.

Eins og sönnum Þing­ey­ingum sæmir lögðu Greifar ekki árar í bát sinn; vældu ekki bónd­ann Bjössa, heldur söfn­uðu liðu og hefndu, að ári liðnu.

Fundu fyrst í Borginni ungan söngv­ara í Versl­un­ar­skól­anum, Felix Bergsson. Fundu nýtt nafn á bandið. Greif­arnir, komu, sáu og sigr­uðu í Mús­íktil­raunum árið 1986.

Einn upp­runa­legu með­lima Greif­anna var og er bassa­leik­ar­inn Jón Ingi. Eins og margir kollega hans á þykku strengj­unum fjórum, hefur hann ekki raðað sér fremst á sviðs­sen­una í þau fjöru­tíu ár sem hann hefur komið fram með Greif­unum.

Starf­andi kyn­táknGreif­arnir á blóma­tíma sínum um miðjan níunda ára­tug­inn. Jón Ingi er lengst til vinstri á mynd­inni. Herða­púðar og hár­sprey voru skyldu­eign ungs fólks á þessum tíma og ekki óal­gengt að meik smit­að­ist í Millet-úlpur þess.

Á sama hátt hefur Jón Ingi haldið sig frá sviðs­ljós­inu á vinnu­stað sínum við Aust­ur­völl; það er helst að hann sjá­ist fylgj­ast með því að allt fari rétt fram úr hlið­ar­sölum, þingsal­ar­ins. Hann sinnir störfum þingvarðar með stakri prýði, að því er kunn­ugir tjáðu blaða­manni.

Hógvær og góður drengur

Þrátt fyrir þrá­beiðni blaða­manns, sem var nán­ast á hnjánum í við­leitni sinni, baðst Jón Ingi góð­lát­lega undan við­tali og sagð­ist kurt­eis­lega kjósa að halda sig sem fyrr, baka­til á sen­unni, hvort sem væri í Ýdölum eða á Alþingi.

Í sama takti hóg­værð ár hefur Jón, ekki verið að guma af sigrum sínum á tón­list­ar­svið­inu meðal vinnu­fé­laga sinna. Í stuttri kynn­ingu starfs­manna á innri vef þings­ins er haft eftir Jóni að í frí­stundum hitti hann stundum hóp félaga úr gam­alli ung­linga­hljóm­sveit. Sem verður að telj­ast með grynnri ára­tökum, í lýs­ingum á lands­þekktri og vin­sælli hljóm­sveit, sem óum­deilt nýtur meira fylgis en obbi þing­manna.

Hljóm­sveit sem seldi hljóm­plötur þús­unda­vís, sem á voru slag­arar sem þorri þjóð­ar­innar þekkir. 

„Við erum búnir að þekkj­ast síðan við fædd­umst, enda eru sex dagar á milli okkar, svo bjuggum við hlið við hlið heima á Húsavík,“ segir Viðar Har­alds­son, alltaf kall­aður Viddi, hljóm­borðs­leik­ari og söngv­ari Greif­anna. Viddi segir þá Jón Inga hafa verið og enn vera bestu vini.

„Hann er gegn­heill og pott­þéttur drengur, eins og bassa­leik­ara er siður,“ segir Viddi. Greif­arnir koma enn fram reglu­lega og segja þá enn vera ung­linga­hljóm­sveit. 

„Við erum fyrst og fremst í því núna af því okkur þykir þetta skemmti­legt. Sem það sann­ar­lega er enn þá,“ segir Viddi.

Svo gæti vel farið að sveitin komi fram um versl­un­ar­manna­helg­ina næstu, þó Viddi vilji síður nefna stað og stund á þessum tíma­punkti.

Eina hátíð þá helgi árs­ins er hægt að úti­loka, Atla­vík­ur­há­tíð­ina. Hún hefur runnið sitt skeið fyrir all­mörgum ára­tugum. Á blóma­skeiði þeirrar sam­komu sömdu Greif­arnir eins konar ópus til Atla­víkur í Hall­orms­stað; lagið Útihátíð. Þar er lýst ferða­lagi um hátíð­ar­svæðið, ýmist upp á sviðs­pall­inn, niður aftur, rölti um Hall­orms­stað­ar­skóg og sund­ferð í Lag­ar­fljót­inu, allt þó undir ein­lægum óskum Greif­anna um að á þeirri ferð, skemmti allir sér vel.

Upp á pall­innLagið Útihátíð var og er vin­sælt og text­inn í við­lag­inu flestum þeim tamur og auð­veldur til söngs, sem komnir eru yfir komp­lexa tán­ings­ár­anna.

Þing­vörð­ur­inn með bass­ann, Jón Ingi Valdi­mars­son, er ekki eini með­limur sveit­ar­innar sem teng­ist eða gæti tengst æðstu stjórn lands­ins. Söngv­ar­inn fyrr­ver­andi, þessi sem sóttur var úr Versl­un­ar­skól­anum, gæti þannig orðið eig­in­maður næsta for­seta lýð­veld­is­ins, fari svo að Baldur Þór­halls­son, eig­in­maður Felix Bergs­sonar, hljóti til þess nægt fylgi.

Ein­hverjar vanga­veltur hafa verið um mögu­legar stjórn­skip­un­ar­legar flækjur og hæfi Katrínar Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fari svo að hún verði kjörin for­seti. Hins vegar telja sér­fræð­ingar að staða þeirra Baldurs og Jóns Inga, sökum tengsla beggja við Felix, muni lítil eða engin áhrif hafa á sam­skipti þings og for­seta.

„Nei, ég held að það muni alls engin áhrif hafa eða leiða til nokk­urrar stjórn­skipu­legrar klemmu,“ sagði Eiríkur Bergmann stjórn­mála­fræði­pró­fessor í sam­tali við Heim­ild­ina um þetta atriði. Eiríkur hins vegar tók undir að vissu­lega þætti honum merki­legt að heyra að bassa­leik­ari Greif­anna væri starfs­maður Alþingis. Eiríkur man enda vel eftir því þegar sveitin var á hátindi frægðar sinnar - eins og allir sem þá höfðu aðgang að útvarpi, sjón­varpi eða stereó-græjum.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgi skoðar heiminn

Við hvaða götu býr Ragnar? Reykás
Helgi skoðar heiminn

Við hvaða götu býr Ragnar? Reykás

Sauð­kræk­ing­ur­inn Ragnar Páll Árnason, sem starfar hjá Össuri, býr í nágrenni höf­uð­stöðva fyr­ir­tæk­is­ins, við göt­una Reykás. Segist ekki hafa ætlað að ílengj­ast þar, en kann nú hvergi betur við sig. Siggi Sig­ur­jóns, guð­faðir Ragnars Reykáss, kann vel að meta sög­una af „nafna“ sínum. Hann á sjálfur pín­lega en um leið drep­fyndna sögu tengda göt­unni í Árbænum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár