Hljómsveitarstjórar rabba saman: Daníel Bjarnason og Jakub Hruša

Til er bók þar sem frægir rit­höf­undar tala við aðra fræga rit­höf­unda um lífið og til­ver­una. Í til­efni komu sin­fón­íu­hljóm­sveit­ar­innar í Bamberg, sem er ein sú fremsta í Evrópu, lá beint við að fá tón­skáldið og hljóm­sveit­ar­stjór­ann Daníel Bjarna­son til að ræða við Jakub Hruša, hinn þekkta hljóm­sveit­ar­stjóra hennar. Hér er sam­tal tveggja eld­klárra hljóm­sveit­ar­stjóra – um það sem hljóm­sveit­ar­stjórar ræða í góðu tómi.

Hljómsveitarstjórar rabba saman: Daníel Bjarnason og Jakub Hruša
Daníel hringdi í Jakub í hljóð­veri Heim­ild­ar­innar og síð­ar­nefndur svar­aði í bíl á ferð, senni­lega úti í skógi, á landa­mærum Tékk­lands og Þýska­lands. Mynd: Golli

Þann 20. apríl dregur til tíð­inda í Hörpu. Sin­fón­íu­hljóm­sveitin í Bamberg mun spila í Eldborg undir stjórn aðal­hljóm­sveit­ar­stjóra síns ásamt franska píanó­leik­ar­anum Héléne Grimaud. Á efn­is­skránni verða Schumann, Brahms og Wagner. Hinn tékk­neski hljóm­sveit­ar­stjóri, Jakub Hruša, er heims­þekktur. Hann hefur tví­vegis hlotið verð­launin International Classical Music Award, auk þess sem Opus Klassik valdi hann stjórn­anda árs­ins 2023. Jakub hefur verið gesta­stjórn­andi hjá helstu hljóm­sveitum heims­ins og hann var nýlega ráð­inn næsti tón­list­ar­stjóri Kon­ung­lega óperu­húss­ins í Covent Garden.

Blaða­maður fékk að vera fluga á vegg þegar Jakub ræddi við Daníel Bjarna­son, tón­skáld og hljóm­sveit­ar­stjóra, sem hefur bæði stjórnað og fengið tón­verk sín flutt af mörgum af helstu hljóm­sveitum heims – og gefið út plötur sem marka tíma­mót.

Jakub HrušaJakub er heims­þekktur. Hann hefur tví­vegis hlotið verð­launin International Classical Music Award, auk þess sem Opus Klassik valdi hann stjórn­anda árs­ins 2023. Jakub hefur verið gesta­stjórn­andi hjá …
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár