Fallist á gæsluvarðhald yfir öllum sex

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur fallist á gæslu­varðhald yfir þremur körlum og þremur konum sem handtekin voru í tengslum við umfangs­miklar aðgerðir lögreglu í gær.

Héraðsdómur Reykjavíkur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst á kröfur lög­reglu. Mynd: Golli

Sex manns voru dæmd í vikulangt gæslu­varðhald í Héraðs­dómi Reykja­víkur að beiðni lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu fyrr í dag. Er það í kjölfar umfangs­mikilla aðgerða lögreglu í gær. Þetta staðfesti Grímur Grímsson, yfir­lögreglu­þjónn miðlægrar rannsóknar­deildar, í samtali við Vísi.

Átta voru handtekin í tengslum við aðgerðirnar í gær en lögreglan lagði fram kröfu um gæslu­varðhald yfir sex þeirra. Er um þrjár konur og þrjá karla að ræða.

Fyrr í dag tilkynnti lögreglan að hún færi fram á það að sex yrðu færð í gæslu­varðhald á grund­velli rannsóknar­hagsmuna. En rökstuddur grunur er um mansal, peninga­þvætti, brot á atvinnu­réttindum útlendinga og skipulagða brota­starfsemi. 

Málið tengist fyrir­tækjum í eigu Davíðs Viðars­sonar sem á meðal annars veitinga­staðina Pho Vietnam, Wok On auk þrifa­fyrir­tækisins Vy-þrif. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pho Vietnam-málið

FréttirPho Vietnam-málið

Starfsemi matvæla­fyrirtækja stöðvuð ef öryggi almennings er ógnað

Framkvæmda­stjóri heilbrigðis­eftirlits Reykja­víkur segir þau ekki bera skyldu til að upplýsa leigusala um niður­stöður eftirlits hjá leigutaka. Niður­stöðurnar eru hins vegar öllum aðgengilegar á vef eftirlitsins. Enginn veitinga­staður hefur kallað eftir kerfi þar sem merkingar um niður­stöðu eftirlitsins eiga að vera sýnilegar á staðnum sjálfum. Slíkt sé þó reglulega til skoðunar.
FréttirPho Vietnam-málið

Heilbrigðis­eftirlitið lét henda gömlum rækjum á WokOn - „Okkur blöskrar“

Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur lét henda núðlum, hrís­grjónum og rækjum á veitinga­stað Wok On í Krónunni á Fiskislóð í desember. Staðurinn fékk fall­einkunn hjá eftirlitinu í byrjun desember og var starfsemin stöðvuð að hluta. „Við tökum þetta mjög alvarlega,“ segir framkvæmda­stjóri Krónunnar. Henni finnst að niður­stöður eftirlitsins ættu að vera aðgengilegri.
FréttirPho Vietnam-málið

Ákall um hjálp frá starfs­fólki Pho Vietnam - „Það er ekki komið fram við okkur eins og manneskjur“

Lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu, stéttar­félögum og fleiri aðilum barst hjálpar­beiðni fyrir tæpu ári þar sem því er lýst hvernig eigandi Pho Vietnam lætur starfs­fólk sitt endur­greiða sér hluta launanna í reiðufé. Starfs­fólk sé einnig látið vinna á öðrum stöðum en ráðningar­samningur þess segir til um. Dvalar­leyfi fólksins á Íslandi er í fjögur ár bundið samningi við vinnu­veitandann.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár